Bjarki áfram markahæstur og taplaus á árinu Sindri Sverrisson skrifar 3. mars 2020 20:02 Bjarki Már Elísson fór til Lemgo með það meðal annars í huga að fá tækifæri til að skora mikið af mörkum, og það hefur svo sannarlega gengið eftir. vísir/getty
Bjarki Már Elísson er áfram með forskot á Hans Lindberg á lista yfir markahæstu leikmenn þýsku 1. deildarinnar í handbolta í kvöld. Bjarki skoraði 7 mörk í 36-29 útisigri Lemgo á Ludwigshafen. Lemgo er í 10. sæti af 18 liðum með 25 stig og hefur enn ekki tapað leik á árinu 2020. Bjarki er markahæstur allra í deildinni með 201 mark, átta mörkum á undan Lindberg. Alexander Petersson skoraði 3 mörk og Ýmir Örn Gíslason 1 þegar Rhein-Neckar Löwen vann Leipzig 26-23. Löwen er með 34 stig í 6. sæti, stigi á eftir Füchse Berlín og tveimur stigum á eftir Hannover, og með leik til góða á þessi tvö lið. Ragnar Jóhannsson skoraði þrjú mörk fyrir Bergischer í 26-26 jafntefli við Füchse Berlín. Lokaskot Ragnars, í blálok leiksins, fór hins vegar ekki í markið. Arnór Þór Gunnarsson var ekki á meðal markaskorara Bergischer að þessu sinni. Þá töpuðu lærisveinar Geirs Sveinssonar í Nordhorn gegn Hannover á heimavelli, 32-24. Nordhorn er með aðeins 4 stig eftir 26 leiki en Hannover er í 4. sæti sem fyrr segir.
Þýski handboltinn Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Fleiri fréttir Bjóða upp á Barna Fan-Zone fyrir leikinn í Höllinni í kvöld Sigurganga Hauka heldur áfram Hvert sæti skipað í Laugardalshöll Teitur kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ Sjá meira