Slökkvibíllinn með sírenur átti að slökkva í eldgosinu Kristján Már Unnarsson skrifar 11. mars 2020 20:00 Þessi sýn blasti við íbúum Vestmannaeyja: Risastór eldveggur í útjaðri bæjarins með miklum drunum. Mynd/Ingvar Friðleifsson.
Gosnóttin á Heimaey gleymist seint þeim sem upplifðu hana; að vakna upp við jarðeld og þurfa að yfirgefa heimili sitt í skyndi. Fyrirmælin voru að allir skyldu halda niður að höfn, koma sér í bát og sem snarast burt frá eynni. Eyjamenn sem settust að í Grindavík eftir gos rifja upp í þættinum Um land allt á Stöð 2 hvernig var að vakna upp við eldgos í útjaðri Vestmannaeyjabæjar þann 23. janúar 1973. Áður óbirtar myndir Ingvars Friðleifssonar jarðfræðings frá þriðja og fjórða degi eldgossins eru sýndar í þættinum. Feðgarnir Kjartan Friðrik og Adólf Sigurgeirsson.Stöð 2/Ólafur Ásgeir Jónsson. „Þá var slökkvibíllinn á fullu með sírenur og læti. Ég vildi endilega snúa við. Þetta væri allt í lagi því slökkvibílinn væri kominn til að slökkva í bálinu,“ segir Kjartan Friðrik Adólfsson, aðalbókari Grindavíkurbæjar. Hann var 8 ára í gosinu en hús fjölskyldunnar, sem stóð við Grænuhlíð, fór undir hraun. Svanhvít Másdóttir var sex ára gömul þegar hún þurfti að flýja heimili sitt í Vestmannaeyjum.Stöð 2/Ólafur Ásgeir Jónsson. „Það sem mér finnst vera merkilegast við þessa nótt er hvað það var mikill friður og ró í kringum okkur. Það var enginn æsingur, ekkert stress, engin hræðsla,“ segir Svanhvít Másdóttir, starfsmaður í Bláa lóninu. Hún var 6 ára í gosinu, fædd og uppalin í Eyjum, og bjó með foreldrum sínum og þremur systkinum við Illugagötu en mamma hennar átti þá von á fjórða barninu. Mæðgurnar Margrét Kristjánsdóttir og Herborg Jónsdóttir.Stöð 2/Ólafur Ásgeir Jónsson. „Í minningunni eru það drunurnar sem ég man mest eftir. Það voru rosalegar drunur. Þær sitja mest í mér,“ segir Herborg Jónsdóttir, fyrrverandi verslunarmaður. Herborg var einstæð móðir og bjó við Faxastíg ásamt þriggja ára dóttur sinni, Margréti, sem segist lítið muna eftir gosnóttinni. Á þriðja degi eldgossins. Stór hluti húsanna á myndinni átti eftir að hverfa undir hraun.Mynd/Ingvar Friðleifsson. „Ég man bara eftir vondu lyktinni í bátnum. Það var svona olíubræla, eins og var í bátunum í þá tíð. Og ælulyktinni. Þetta er einhvern veginn svona blanda af rosalega vondri lykt. Af því að það urðu allir bara svo rosalega sjóveikir,“ segir Margrét Kristjánsdóttir, sem jafnframt kveðst muna eftir því þegar afi hennar fór með hana upp á þilfar. Um 5.300 manns bjuggu í Vestmannaeyjum þegar eldsprungan opnaðist.Mynd/Ingvar Friðleifsson. „Og við horfum til baka yfir eyjarnar. Ég man alltaf eldvegginn. Eldurinn. Það var bara eins og það væri kviknað í. Það er það eina sem þú sást þegar þú lítur til baka.“ Eyjamennirnir eiga það sammerkt að þeir tóku nánast ekkert með sér á flóttanum undan eldgosinu, varla föt til skiptanna. Áætlað er að næstu hús hafi staðið um eða innan við 200 metra frá eldsprungunni.Mynd/Ingvar Friðleifsson. „Við vorum bara á leiðinni inn fyrir Eiði. Þetta var bara eldur sem myndi fara eftir smástund,“ segir Adólf Sigurgeirsson járnsmiður, faðir Kjartans. Hér má sjá Vestmannaeyingana lýsa gosnóttinni:
Eldgos og jarðhræringar Grindavík Um land allt Vestmannaeyjar Heimaeyjargosið 1973 Tengdar fréttir Þegar Eyjamenn reyndu að taka völdin af eldfjallinu Eldgosið á Heimaey árið 1973 var til umfjöllunar í þættinum "Um land allt" á Stöð 2 í kvöld. 27. janúar 2013 20:09 Væri gaman að sjá barnavagninn eftir 40 ár "Ég hefði nú gaman af því að sjá barnavagninn. Hann á að vera þarna," sagði Guðrún Ingibergsdóttir í þættinum "Um land allt" á Stöð 2 í kvöld, þar sem fjallað var um eldgosið á Heimaey. 3. febrúar 2013 19:58 Rektorinn í Oxford sendi Ingvar í boði háskólans í eldgosið í Vestmannaeyjum 47 árum eftir eldgosið á Heimaey eru enn að koma í dagsljósið myndir af gosinu sem ekki hafa áður birst opinberlega. Það á við um filmubút sem ungur jarðfræðingur tók. 9. mars 2020 22:00 Sárið fyrst núna að gróa eftir 40 ár Eyjamenn gerðu upp Heimaeyjargosið og lýstu söknuði vegna byggðarinnar og landsins sem hvarf undir hraun og ösku í þættinum "Um land allt"´á Stöð 2 í kvöld. 10. febrúar 2013 20:32 Eyjamenn lýsa því hvernig var að vakna upp við eldgos Þegar eldsprungan opnaðist á Heimaey þann 23. janúar fyrir fjörutíu árum í austurjaðri byggðarinnar þá var fjarlægðin frá næstu íbúðarhúsum litlu meiri en vegalengdin yfir Arnarhól í Reykjavík. 5200 manns í Vestmannaeyjum upplifðu þar einhverja ógnþrungnustu nótt Íslandssögunnar. Þennan atburð ætlar Stöð 2 næstu sunnudagskvöld að rifja upp í þættinum "Um land allt" með hjálp Eyjamanna sem stóðu í eldlínunni en fyrsti þátturinn var sýndur í kvöld. 20. janúar 2013 19:30 Spennandi söguminjar við hvert spor í Eyjum Fornleifar í Herjólfsdal eru að miklu leyti órannsakaðar og afar spennandi vegna elstu byggðar á Íslandi. 20. júní 2017 21:45 Skrýtið hvernig örlög húsanna í gosinu réðust af nöfnum þeirra Húsið Hraun fór undir hraun, hraunjaðarinn stöðvaðist við húsið Jaðar, hornið fór af húsinu Horn, og aðeins blátindurinn stóð upp úr af húsinu Blátindi. 28. júní 2017 09:15 Mest lesið „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Lífið Fresta öðrum tónleikum sínum hérlendis vegna óvænts fráfalls ástvinar Tónlist „Maður getur varla beðið um meira“ Lífið Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi Lífið „Þú ætlar ekki að verða feilaður rappari“ besta mantran Tónlist Lilja í Cosmo selur aðra perlu Kjartans Lífið Örvar og María Elísabet nýtt listapar Lífið Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Lífið Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Lífið Korter í fæðingarþunglyndi en fór út að hlaupa viku eftir fæðingu Lífið Fleiri fréttir Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Lilja í Cosmo selur aðra perlu Kjartans Korter í fæðingarþunglyndi en fór út að hlaupa viku eftir fæðingu Spurt var um dýr með það harðan skjöld að byssukúlurnar fljúga af þeim Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Sjá meira
Þegar Eyjamenn reyndu að taka völdin af eldfjallinu Eldgosið á Heimaey árið 1973 var til umfjöllunar í þættinum "Um land allt" á Stöð 2 í kvöld. 27. janúar 2013 20:09
Væri gaman að sjá barnavagninn eftir 40 ár "Ég hefði nú gaman af því að sjá barnavagninn. Hann á að vera þarna," sagði Guðrún Ingibergsdóttir í þættinum "Um land allt" á Stöð 2 í kvöld, þar sem fjallað var um eldgosið á Heimaey. 3. febrúar 2013 19:58
Rektorinn í Oxford sendi Ingvar í boði háskólans í eldgosið í Vestmannaeyjum 47 árum eftir eldgosið á Heimaey eru enn að koma í dagsljósið myndir af gosinu sem ekki hafa áður birst opinberlega. Það á við um filmubút sem ungur jarðfræðingur tók. 9. mars 2020 22:00
Sárið fyrst núna að gróa eftir 40 ár Eyjamenn gerðu upp Heimaeyjargosið og lýstu söknuði vegna byggðarinnar og landsins sem hvarf undir hraun og ösku í þættinum "Um land allt"´á Stöð 2 í kvöld. 10. febrúar 2013 20:32
Eyjamenn lýsa því hvernig var að vakna upp við eldgos Þegar eldsprungan opnaðist á Heimaey þann 23. janúar fyrir fjörutíu árum í austurjaðri byggðarinnar þá var fjarlægðin frá næstu íbúðarhúsum litlu meiri en vegalengdin yfir Arnarhól í Reykjavík. 5200 manns í Vestmannaeyjum upplifðu þar einhverja ógnþrungnustu nótt Íslandssögunnar. Þennan atburð ætlar Stöð 2 næstu sunnudagskvöld að rifja upp í þættinum "Um land allt" með hjálp Eyjamanna sem stóðu í eldlínunni en fyrsti þátturinn var sýndur í kvöld. 20. janúar 2013 19:30
Spennandi söguminjar við hvert spor í Eyjum Fornleifar í Herjólfsdal eru að miklu leyti órannsakaðar og afar spennandi vegna elstu byggðar á Íslandi. 20. júní 2017 21:45
Skrýtið hvernig örlög húsanna í gosinu réðust af nöfnum þeirra Húsið Hraun fór undir hraun, hraunjaðarinn stöðvaðist við húsið Jaðar, hornið fór af húsinu Horn, og aðeins blátindurinn stóð upp úr af húsinu Blátindi. 28. júní 2017 09:15