Mikael á bekknum er Midtjylland komst áfram | Amanda skoraði Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 16. september 2020 20:45 Mikael Anderson í leik með Midtjylland á síðustu leiktíð. VÍSIR/GETTY
Mikael Anderson kom ekki við sögu er FC Midtjylland tryggði sér sæti í umspili um sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu. Amanda Andradóttir var á skotskónum í dönsku bikarkeppninni og Andri Rúnar hóf leik á varamannabekk Esjberg í kvöld. Mikael sat sem fastast á varamannabekk Midtjylland er liðið vann öruggan 3-0 sigur á Young Boys frá Sviss á heimavelli sínum í kvöld. Íslenski vængmaðurinn hefur verið orðaður við AGF undanfarið og gæti verið að það fari svo að hann verði samherji Jóns Dags Þorsteinssonar áður en langt um líður. Dönsku meistararnir eru með sigrinum komnir í umspil um sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Þar mætir liðið Slavia Prag frá Tékklandi og fara leikirnir fram 22. og 30. september. Mikael er ekki eini Íslendingurinn í umspilinu en Sverrir Ingi Ingason er þar einnig með liði sínu PAOK frá Grikklandi. Hin 16 ára Amanda Andradóttir heldur áfram að gera það gott með Nordsjælland í Danmörku. Hún var á skotskónum er liðið vann 5-1 sigur á Damsö í 32-liða úrslitum dönsku bikarkeppninnar í kvöld. Hennar annað mark fyrir félagið. Þá lék Andri Rúnar Bjarnason síðustu 25 mínúturnar er Esjberg lagði HB Køge í dönsku B-deildinni í kvöld. Lokatölur 1-0 Esjberg í vil og lærisveinar Ólafs Helga Kristjánssonar nú unnið báða deildarleiki sína á tímabilinu.
Fótbolti Meistaradeild Evrópu Danski boltinn Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Fær laun greidd en fær ekki að dæma Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Náði loks sigri með Ferrari Formúla 1 Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Fótbolti Fleiri fréttir Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Vilja sjá betri frammistöðu frá Breiðablik Fær laun greidd en fær ekki að dæma Maður dagsins: Innflytjandi sem fór snemma til Bayern Mörkin úr Bestu deildinni Fyrsti sigur á heimsmeistaramóti síðan 1990 Óvæntur varnarsigur „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Amorim talinn líklegastur til að taka við AC Milan Forseti FIFA móðgaði Ítali Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Brasilía - Marokkó | Fyrsti stórleikurinn Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Siggi Raggi með NSÍ á toppnum „Búnar að vera svolítið litlar og linar“ „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Getur Vinicius fengið brasilísku þjóðina til að elska sig? Leggja inn mótmæli vegna meðferðarinnar á Partey HK-konur tvöfölduðu markaskor sumarsins í stórsigri á Stólunum Uppgjörið: Valur – Þór/KA 0-0 | Markalaust í bragðdaufum leik á Hlíðarenda Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fylkismenn fengu hjálp á síðustu stundu og unnu svo í framlengingu „Það er alltaf gaman að vera á þeim stað í töflunni“ „Stelpurnar voru bara geggjaðar“ Á sársaukafullar minningar af HM Uppgjör: FH komið á toppinn Uppgjörið: Sterk viðbrögð Grindavíkur/Njarðvíkur skiluðu mikilvægum sigri Sjá meira