Bandarísk flugfélög segja upp tugum þúsunda Atli Ísleifsson skrifar 2. október 2020 07:52 American Airlines hyggst segja upp 19 þúsund manns og United Airlines um 13 þúsund. Getty
Stærstu flugfélög Bandaríkjanna hyggjast segja upp tugi þúsunda starfsmanna sinna eftir að þingmönnum á bandaríska þinginu mistókst að komast að samkomulagi um aðgerðir til aðstoðar fyrirtækjum sem farið hafa illa út úr kórónuveirufaraldrinum. BBC segir frá því að American Airlines ætli að segja upp 19 þúsund manns og United Airlines um 13 þúsund. Félögin segjast þó bæði tilbúin til að draga uppsagnirnar til baka, náist samkomulag um björgunarpakka frá ríkinu. Flugfélögin bandarísku hafa nú þegar fengið milljarða Bandaríkjadala í ríkisaðstoð í faraldrinum en sú aðstoð dugar ekki lengur að sögn stjórnenda. Sú aðstoð var háð því að félögin myndu ekki segja upp starfsfólki, fram til 1. október hið minnsta. Flugfélög hafa farið illa út úr heimsfaraldri kórónuveirunnar, en algert hrun hefur orðið í sölu flugferða.
Bandaríkin Fréttir af flugi Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira