Heldur áfram að brjóta á konum á Vestfjörðum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 7. október 2020 12:11 Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Vestfjarða í morgun. Vísir/Vilhelm
Karlmaður á Vestfjörðum hefur verið dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa gripið tvisvar utanklæða um brjóst konu á skemmtistað á Ísafirði. Þá þarf hann að greiða konunni 200 þúsund krónur í miskabætur. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Vestfjarða í morgun. Karlmaðurinn játaði brot sitt undanbragðalaust og var málið því dómtekið án frekari sönnunarfærslu. Í niðurstöðu héraðsdóms er bent á að karlmaðurinn hlaut dóm fyrir rúmu ári fyrir blygðunarsemi. Þá fyrir að hafa sýnt gesti á heimili sínu nektarmyndir af konu. Myndirnar sýndi hann viðkomandi á sjónvarpsskjá en á þeim lá konan nakin í rúmi sumarið 2018. Maðurinn hlaut 30 daga fangelsisdóm fyrir brot sitt þá en dómurinn var skilorðsbundinn til tveggja ára. Aðeins rúmt ár er frá því sá dómur var kveðinn upp og því rauf karlmaðurinn skilorð. Héraðsdómur tók því upp skilorðsdóminn og dæmdi karlmanninn í þriggja mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára. Konan fór fram á 1,5 milljónir króna í miskabætur en héraðsdómur dæmdi henni 200 þúsund krónur og vísaði til dómafordæma.
Ísafjarðarbær Kynferðisofbeldi Dómsmál Næturlíf Mest lesið Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Sjá meira