Mun sakna smjörsins meira en kjötmáltíðanna Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 12. janúar 2021 12:30 Annska Arndal íslenskukennari er á meðal þátttakanda. Hún vonar að fjölskyldan finni allavega tvær jurtamáltíðir sem allir kunna að meta. Kjötætur óskast! Lóa Pind Aldísardóttir þáttastjórnandi fékk fjórar kjötelskandi fjölskyldur til að gjörbreyta mataræði heimilisins í fjórar vikur fyrir þættina Kjötætur óskast! Vegan með Lóu Pind. Þættirnir fóru af stað í gær og verða alls fimm talsins.
Á meðal þeirra sérfræðinga sem fræddi hópinn í fyrsta þættinum voru Sævar Helgi Bragason vísindamiðlari „Mér þykir ótrúlega vænt um þessa gullfallegu plánetu sem við búum á,“ sagði Sævar Helgi þar meðal annars. Í þættinum er talað um að flestir búist við því að einhverjir aðrir geri eitthvað í umhverfismálum. „Þegar öllu er á botninn hvolft þá erum við öll Indriði er það ekki?“ spurði Sævar Helgi. „Er það ég? Á ég að gera það?“ Hægt er að horfa á brot úr þættinum hér fyrir neðan þar sem þátttakendur fylgdust misspenntir með fræðslunni. Þar má einnig sjá Eyþór Eðvarðsson baráttumann gegn hamfarahlýnun. Klippa: Kjötætur óskast! - Sérfræðingarnir fræða hópinn Mjólkur- og kjötframleiðendur Í þessari fimm þátta seríu fylgist Lóa með fjórum íslenskum fjölskyldum að taka þátt í fjögurra vikna vegan tilraun. Hópurinn fór í ýmsar heilsufarsmælingar áður en tilraun hófst og aftur í lokin til að kanna hvort þessi umbylting á mataræðinu hafði áhrif á heilsu þeirra. Þá skráðu allir mataræði sitt inn í Matarspor EFLU meðan á tilraun stóð og að auki er ein samanburðarvika frá því fyrir tilraun, til að kanna hvort kolefnisspor fjölskyldnanna minnkar við að sneiða hjá öllum dýraafurðum. Áður en tilraunin hófst borðaði hópurinn saman eina kjötmáltíð, síðustu kjötmáltíðina í nokkrar vikur. Við það tilefni tók Lóa Pind púlsinn á þátttakendum og fékk að heyra þeirra helstu áhyggjur. Lóa Pind fjallar um matarvenjur grænkera í nýjum þáttum sem fara í loftið á mánudag.Kjötætur óskast „Við erum náttúrulega mjólkurframleiðendur og kjötframleiðendur svo þið getið rétt ímyndað ykkur á hverju við lifum,“ segir Hrafnhildur Baldursdóttir bóndi um mataræði fjölskyldunnar fyrir breytinguna. „Það er allt með rjóma, smjöri og ostum, eiginlega bara allt sem ég elda,“ segir Annska Arndal íslenskukennari. Hún á því ekki eftir að sakna kjötsins mest af öllu í þessari vegan tilraun. „Ég nota smjör í svona tonnavís svo ég mun sakna þess mest, ég mun sakna þess meira en kjöts.“ Klippa: Kjötætur óskast! - Mun sakna smjörs meira en kjöts Framleiðandi og leikstjóri þáttanna er Lóa Pind Aldísardóttir, myndatökumaður er Ívar Kristján Ívarsson og klippingu annaðist Hrafn Jónsson. Framleitt af Lóa Production fyrir Stöð 2.
Vegan Matur Kjötætur óskast! Bíó og sjónvarp Tengdar fréttir Ástríðuveiðimaður í vegan tilraun „Ég fer dálítið í gæs og svo fer maður náttúrulega á rjúpu, til að ná í jólamatinn. Það eru skemmtilegustu veiðarnar. Maður labbar heilu og hálfu dagana og fær ekki neitt. En það er bara fínt,“ segir Sigurður Leifsson, ástríðuveiðimaður og einn af eigendum World Class. 11. janúar 2021 09:00 Hugrakkir íslenskir kúabændur taka þátt í vegan tilraun „Frá því ég var lítil þá hugsaði ég alltaf að prufa sem flest. Áður en ég færi að velja mér starf og annað til að geta dæmt, eða prufað sem flestar hliðar. Þannig að það var það sem ýtti manni út í þetta,“ segir Hrafnhildur Baldursdóttir kúabóndi á Litla-Ármóti á Suðurlandi. 10. janúar 2021 13:46 Fékk fjórar fjölskyldur til að vera vegan í mánuð: „Mann langar ekki að borða þetta“ Lóa Pind fékk íslenskar fjölskyldur til að gerast grænkerar eða vegan í einn mánuð og fylgdist svo með því hvernig þeim gekk með það verkefni. Markmiðið var að kanna hvort þetta myndi minnka kolefnisspor þeirra. 9. janúar 2021 09:00 Mest lesið „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Lífið Fresta öðrum tónleikum sínum hérlendis vegna óvænts fráfalls ástvinar Tónlist „Maður getur varla beðið um meira“ Lífið Örvar og María Elísabet nýtt listapar Lífið Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Lífið Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi Lífið „Þú ætlar ekki að verða feilaður rappari“ besta mantran Tónlist Lilja í Cosmo selur aðra perlu Kjartans Lífið Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Lífið Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Lífið Fleiri fréttir Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Lilja í Cosmo selur aðra perlu Kjartans Korter í fæðingarþunglyndi en fór út að hlaupa viku eftir fæðingu Spurt var um dýr með það harðan skjöld að byssukúlurnar fljúga af þeim Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Sjá meira
Ástríðuveiðimaður í vegan tilraun „Ég fer dálítið í gæs og svo fer maður náttúrulega á rjúpu, til að ná í jólamatinn. Það eru skemmtilegustu veiðarnar. Maður labbar heilu og hálfu dagana og fær ekki neitt. En það er bara fínt,“ segir Sigurður Leifsson, ástríðuveiðimaður og einn af eigendum World Class. 11. janúar 2021 09:00
Hugrakkir íslenskir kúabændur taka þátt í vegan tilraun „Frá því ég var lítil þá hugsaði ég alltaf að prufa sem flest. Áður en ég færi að velja mér starf og annað til að geta dæmt, eða prufað sem flestar hliðar. Þannig að það var það sem ýtti manni út í þetta,“ segir Hrafnhildur Baldursdóttir kúabóndi á Litla-Ármóti á Suðurlandi. 10. janúar 2021 13:46
Fékk fjórar fjölskyldur til að vera vegan í mánuð: „Mann langar ekki að borða þetta“ Lóa Pind fékk íslenskar fjölskyldur til að gerast grænkerar eða vegan í einn mánuð og fylgdist svo með því hvernig þeim gekk með það verkefni. Markmiðið var að kanna hvort þetta myndi minnka kolefnisspor þeirra. 9. janúar 2021 09:00