Innkalla dýrafóður eftir dauða yfir 70 hunda Eiður Þór Árnason skrifar 14. janúar 2021 14:53 Framleiðandinn hóf upprunalega innköllun á vörunum í desember. Getty/Sally Anscombe Bandaríski framleiðandinn Midwestern Pet Foods hefur hafið innköllun á gæludýrafóðri eftir að yfir 70 hundar drápust og minnst 80 aðrir veiktust í kjölfar þess að hafa étið Sportmix-fóður frá fyrirtækinu.
Prófanir leiddu í ljós að fóðrið innihélt hættulegt magn af eiturefnunum aflatoxin, sem eru aukaafurð myglu sem vex á maís og öðru korni. Samkvæmt upplýsingum frá PAK ehf, umboðsaðila Midwestern Pet Foods á Íslandi, eru þær vörur sem innköllunin nær til ekki seldar hér á landi. PAK flutti um tíma inn Sportmix Original Catfood en það fóður var tekið úr sölu um áramót. Innköllun hófst í desember Breska ríkisútvarpið greinir frá því að Midwestern Pet Foods hafi byrjað innköllun á sumum vörum sínum í desember eftir að 28 hundar létust. Innköllunin var útvíkkuð í þessari viku eftir að greint var frá fleiri dauðsföllum. Nær hún nú til Sportmix, Pro Pac Originals, Splash, Sportstrail og Nunn Better þurrfóðurs ætlað köttum og hundum sem rennur út fyrir 9. júlí árið 2022. Bandaríska matvæla- og lyfjastofnunin, FDA, rannsakar nú málið. Einkenni aflatoxin-eitrunar hjá dýrum eru meðal annars uppköst, sinnuleysi og skortur á matarlyst. FDA upplýsti á mánudag að áðurnefnd eiturefni gætu fundist í lífshættulegu magni í umræddu gæludýrafóðri sem væri sums staðar enn hægt að finna í hillum verslana og á heimilum gæludýraeigenda. Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum frá PAK ehf.
Innköllun Bandaríkin Gæludýr Mest lesið Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira