Minnst fjórir látnir og tíu særðir í Madríd Samúel Karl Ólason skrifar 21. janúar 2021 09:29 Slökkviliðsmenn virða rústirnar fyrir sér. AP/Bernat Armangue Minnst fjórir eru látnir og minnst tíu særðir eftir mikla sprengingu í Madríd í gær. Sprengingin varð þegar verið var að gera við gaskerfi sjö hæða húss í Puerta de Toledo, nærri miðborg Madrídar, og olli hún gífurlegum skemmdum.
Húsið er ónýtt eftir sprenginguna. El País segir frá því að mikil gaslykt hafi fundist í húsinu í gær og hafi hún ágerst. Því hafi prestur kallað til viðgerðarmann. Skömmu eftir að hann mætti hafi byggingin sprungið en viðgerðarmaðurinn er meðal þeirra látnu. Presturinn lést einnig. Sprengingin olli miklum usla í hverfinu. Einn nágranni sem El País ræddi við segist hafa horft á svalirnar sínar koma inn í gegnum vegginn á íbúð sinni í sprengingunni og segir ótrúlegt að hann hafi ekki dáið eða slasast. Eftir sprenginguna hafi húsið sem hann býr í nötrað í um fimmtán sekúndur. 57 íbúar dvalarheimilis, sem er við hlið hússins sem sprakk, voru fluttir á brott af íbúum hverfisins og komu þau sér tímabundið fyrir á hóteli þar nærri. Hinu megin við húsið er grunnskóli en á milli húsanna er leikgarður. Hann var þó tómur og einungis eitt barn særðist lítillega á höfði.
Spánn Tengdar fréttir Minnst þrír látnir í sprengingu í Madríd Mikil sprenging átti sér stað í Madríd á Spáni í dag og eru minnst þrír látnir. Útlit er fyrir að sprenginin hafi orðið vegna gasleka. 20. janúar 2021 14:31 Mest lesið Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Fleiri fréttir Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Sjá meira
Minnst þrír látnir í sprengingu í Madríd Mikil sprenging átti sér stað í Madríd á Spáni í dag og eru minnst þrír látnir. Útlit er fyrir að sprenginin hafi orðið vegna gasleka. 20. janúar 2021 14:31