Frá Vesturbæ Reykjavíkur til Napolí Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 2. febrúar 2021 18:31 Lára Kristín Pedersen [fyrir miðju] í baráttunni gegn Stjörnunni síðasta sumar. Hún lék með Garðbæingum frá 2014 til 2018. Vísir/Vilhelm Lára Kristín Pedersen gekk í dag til liðs við ítalska úrvalsdeildarfélagið Napoli. Lára Kristín lék með KR í Pepsi Max deild kvenna síðasta sumar en liðið endaði á að falla er Íslandsmótinu í knattspyrnu var hætt.
Ítalska félagið hefur ekki enn tilkynnt félagaskiptin á samfélagsmiðlum sínum en á vef Knattspyrnusambands Íslands hafa skiptin verið staðfest. Lára Kristín verður þá annar Íslendingurinn í herbúðum Napoli en varnarmaðurinn Guðný Árnadóttir er þar sem stendur á láni frá AC Milan Hin 26 ára gamla Lára Kristín leikur vanalega á miðri miðjunni og er þetta í fyrsta sinn sem hún heldur erlendis í atvinnumennsku. Á ferli sínum hefur hún leikið í háskólaboltanum í Bandaríkjunum ásamt því að hafa spilað með Aftureldingu, Stjörnunni, Þór/KA og KR á Íslandi. Lára hefur leikið 167 leiki í efstu deild á Íslandi og skorað í þeim 15 mörk. Hún á einnig að baki tvo A-landsleiki sem og 32 leiki fyrir yngri landslið Íslands. Napoli er sem stendur í mikilli fallbaráttu en liðið situr í 11. sæti úrvalsdeildarinnar eða næst neðsta sæti deildarinnar með aðeins fjögur stig þegar tólf umferðum er lokið. Öll von er þó ekki úti enn þar sem tíu leikir eru eftir og aðeins fjögur stig eru í San Marino sem situr í 10. sæti deildarinnar.
Fótbolti Íslenski boltinn KR Ítalski boltinn Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport „Ef ég mætti ráða þá væri þetta öðruvísi“ Sport Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira