Dramatískur sigur Börsunga í bráðfjörugum leik Arnar Geir Halldórsson skrifar 7. febrúar 2021 21:57 Börsungar fagna marki í kvöld. vísir/Getty Sigurganga Barcelona hélt áfram þegar liðið heimsótti Real Betis í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Lionel Messi hóf leik á varamannabekk Börsunga og Betis fór með forystu í leikhlé eftir mark Borja Iglesias á 37.mínútu. Messi var skipt inná á 57.mínútu og það tók hann rétt rúmlega eina mínútu að jafna metin með góðu skoti úr vítateignum. Tíu mínútum síðar komust Börsungar í forystu þegar Victor Ruiz skoraði sjálfsmark en hann skoraði svo skömmu síðar í rétt mark og staðan því 2-2 fyrir lokamínútur leiksins. Portúgalska ungstirnið Trincao reyndist hetja Börsunga því hann skoraði frábært mark á 87.mínútu sem reyndist sigurmarkið í leiknum. Barcelona í 4.sæti La Liga, tíu stigum á eftir toppliði Atletico Madrid. Spænski boltinn
Uppgjörið: Víkingur - Fram 5-0 | Elías Már með þrennu í stórsigri Víkings í toppslagnum Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: Breiðablik - KA 3-1| Mikilvægur sigur Blika en vandræði KA halda áfram Íslenski boltinn
Uppgjörið: ÍBV-Stjarnan 2-1| Endurkomusigur Eyjamanna og uppskerubrestur Stjörnunnar Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: FH - Þór Ak. 1-1| Úrslit sem gera lítið fyrir bæði lið í fallbaráttunni Íslenski boltinn