Var ekki að brjótast inn heldur að reyna að komast út Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 16. mars 2021 06:53 Lögreglan hafði í ýmsu að snúast í gærkvöldi og nótt. Vísir/Vilhelm Upp úr klukkan hálffimm í morgun barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um yfirstandandi innbrot í verslun í Kópavogi.
Var ein manneskja inni í búðinni þegar lögregla kom á vettvang. Í ljós kom að hún hafði sofnað inni á salerni fyrr um kvöldið og var svo læst inni í búðinni. Þegar hún reyndi að komast út fór öryggiskerfi verslunarinnar í gang. Þá var lögreglu tilkynnt um líkamsárás í Árbæ upp úr klukkan tvö í nótt. Að því er segir í dagbók var hinn grunaði handtekinn og vistaður í fangageymslu. Um klukkan hálftvö í nótt var tilkynnt um mann í annarlegu ástandi sem var að valda truflun og raska svefnfrið nágranna en ekki kemur fram í dagbók lögreglu hvar þetta nákvæmlega var í bænum. Maðurinn fór ekki að ítrekuðum fyrirmælum lögreglu um að láta af háttseminni og var hann handtekinn og færður í fangaklefa. Þá var tilkynnt um fjóra þjófnaði í verslunum. Tilkynnt var um þjófnað í hverfi 108 síðdegis í gær og voru tveir menn á vettvangi þegar lögreglumenn komu á staðinn. Var málið afgreitt með skýrslutöku á staðnum. Skömmu fyrir klukkan hálfsex var svo tilkynnt um þjófnað í verslun í hverfi 103. Reyndist gerandinn vera á barnsaldri og var málið því leyst með aðkomu foreldra og barnaverndar. Rúmlega eitt í nótt var svo tilkynnt um annan þjófnað í verslun í hverfi 108. Gerandi var á staðnum þegar lögregla kom og var málið afgreitt með skýrslutöku á vettvangi. Klukkan hálffimm í morgun var tilkynnt um mann grunaðan um þjófnað úr sólarhringsverslun. Var það mál líka afgreitt með vettvangsskýrslu.
Lögreglumál Kópavogur Mest lesið Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Innlent Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Innlent Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Innflytjendamálin almenningi efst í huga Innlent Fleiri fréttir Gleðileg jól kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Skötuilmurinn leggst yfir landið og Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast vel með bensínverðinu Áfram auknar líkur á eldgosi Sjá meira