„Getur vel verið að Birkir Már hefði byrjað leikinn ef hann hefði ekki verið í banni“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. mars 2021 22:46 Birkir Már Sævarsson tók út leikbann í leiknum gegn Þýskalandi í kvöld. vísir/vilhelm Arnar Þór Viðarsson sagði að það hefði ekki legið fyrir fyrr en í gær hvort Birkir Már Sævarsson gæti spilað leikinn gegn Þýskalandi í undankeppni HM í kvöld.
Birkir Már fékk rautt spjald gegn Englandi í lokaleik Íslands í Þjóðadeildinni í fyrra. Aðstandendur íslenska liðsins voru ekki klárir á hvort hann tæki bannið með sér inn í undankeppni HM og fengu ekki svar um það fyrr en í gær. „Við vissum að hann fékk rautt gegn Englandi en vorum ekki alveg öruggir hvort hann tæki rauða spjaldið með sér. Við biðum eftir svari og það kom í gær,“ sagði Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari á blaðamannafundi eftir 3-0 tapið fyrir Þýskalandi í kvöld. Aðspurður hvort Birkir Már hefði átt að byrja leikinn í kvöld sagði Arnar að það hefði sannarlega verið inni í myndinni. „Þetta eru þrír erfiðir leikir og við þurfum að stýra álaginu. Það er erfitt fyrir Birki Má að spila þrjá leiki á skömmum tíma. Það getur vel verið að hann hefði byrjað leikinn ef hann hefði ekki verið í banni en það hefur ekkert upp á sig að velta sér upp úr því núna. Hann var í banni,“ sagði Arnar sem hrósaði Alfonsi Sampsted sem lék sem hægri bakvörður í kvöld. „Mer fannst Alfons standa sig vel. Hann óx vel í leiknum. Í seinni hálfleiknum varðist hann vel, fann sig betur og þorði að sækja fram.“
HM 2022 í Katar Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Enski boltinn Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport Brentford tók Tottenham í karphúsið Enski boltinn Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sport Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Handbolti Fleiri fréttir Sigurmark á lokamínútunni í fyrsta leiknum í endurkomu Mourinhos De Bruyne gerði gæfumuninn gegn Mikael Agli og félögum De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Hinrik kominn á blað með nýja liðinu og okkar menn í Tyrklandi fögnuðu sigrum Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Brentford tók Tottenham í karphúsið Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Húsvíkinga Ísfirðingar geta andað léttar Andri heldur áfram að skora fyrir Blackburn Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur HK vann enn einn heimaleikinn og Fylkir flengdi Grindavík Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin Stefán Teitur með tvennu í þægilegum bikarsigri Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Sjá meira