Laugardalshöll eins og vel smurð vél í bólusetningunum Heimir Már Pétursson skrifar 28. apríl 2021 19:46 Það var gengið hratt en örugglega og faglega til verks við bólusetningu þúsunda karla og kvenna á aldrinum sextíu til sjötíu ára í Laugardalshöll í dag. Vísir/Vilhelm Það var eins og fólk hefði aldrei gert annað en tekið þátt í skipulegum bólusetningum þegar það streymdi inn í Laugardalshöllina öðrum megin og út úr henni hinum meginn í dag. Sóttvarnalæknir var einn þeirra og var snortinn af móttökunum sem hann fékk.
Fullur salur Laugardalshallar brast ósjálfrátt í eitt alsherjar klapp þegar Þórólfur Guðnason gekk í sal Laugardalshallar í dag.Vísir/Vilhelm Það var mikil röð og regla á bólusetningunum íLaugardalshöll í dag þegar metfjöldi var bólusettur eða rúmlega átta þúsund manns en níu þúsund höfðu verið boðuð. Og fólk var ekkert skelkað að fá AstraZenica efnið. Það var eins og rokkstjarna gengi í salinn þegar Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir mætti með jafnöldrum sínum í bólusetningu í Laugardalshöllinni í dag og þáði fyrri sprautuna af AstraZeneca. Þú fékkst hjartnæmar móttökur? „Algjörlega og bara mjög snortinn af því,“ sagði Þórólfur. Elísabet Pétursdóttir segir Þórólf dásamlegan og tók vel undir þegar klappað var fyrir honum.Stöð 2/Arnar Og nærvera hans hafi greinilega róandi áhrif á viðstadda eins og Elísabetu Pétursdóttur. „Hann er bara stórkostlegur. Það eitt er hægt að segja.“ Það var klappað fyrir honum þegar hann kom? „Algerlega. Ég tók vel undir það,“ sagði Elísabet eftir að hún hafði skömmu áður fengið sprautuna. Erla Ríkharðsdóttir var ekki smeik við að fá AstraZeneca og sagðist treysta sóttvarnayfirvöldumStöð 2/Arnar Erla Ríkharðsdóttir var fegin að hafa loks verið bólusett með fyrri sprautunni. Ekki verra að vera á sama tíma og Þórólfur? „Nei, nei það er hið besta mál.“ Ekkert hrædd við AstraZeneca? „Nei, nei, nei, nei. Við treystum bara fólkinu okkar sem segir að þetta sé í lagi,“ sagði Erla. Jón Júlíus Tómasson sagði traustvekjandi að vita af sóttvarnalækni í sömu sætaröð og hann við bólusetningarnar í morgun.Stöð 2/Arnar Jón Júlíus Tómasson var líka hæstánægður með sprautuna. Ekkert skelkaður við þetta umtalaða bóluefni? „Nei, mér finnst gott að hafa Þórólf hérna í röðinni.“ Traustvekjandi? „Já, það er traustvekjandi,“ sagði Jón Júlíus og hló. Jóhönnu Eiríksdóttur leist fyrst ekkert á að verða bólusett með AstraZeneca en sagði það veita henni öryggi að Þórólfur væri á staðnum.Stöð 2/Arnar Jóhanna Eiríksdóttir var ánægð með að hafa loks stigið þetta skref. „Ég var nú ekkert hrifin af þessu AstraZenica en ég sé að Þórólfur er hérna í röðinni þannig að það veitir mér öryggi.“ Þú treystir honum? „Já ég treysti honum.“ Finnur þú eitthvað fyrir því núna strax að vera búin að fá sprautuna? „Nei, nei. Bara fegin að þetta er búið,“ sagði Jóhanna. Þórólfur Guðnason fær fyrri sprautuna af AstraZeneca. Hann vonar að hann fái einhverjar aukaverkanir því þær sýni að bóluefnið sé að virka.Vísir/Vilhelm Og sóttvarnalæknir landsins var í hátíðarskapi og dáðist af skipulaginu og hvað fólk var jákvætt í Laugardalshöll í dag. „Ég er mjög spenntur. Þetta er flott,“ sagði Þórólfur rétt áður en hann var sprautaður. Ánægður að fá AstraZeneca? „Algjörlega. Þetta er toppurinn.“ Heldur þú að þú fáir einhverjar aukaverkanir? „Örugglega. Vegna þess að ef ég fengi engar myndi ég vera næstum viss um að bóluefnið væri ekki að virka.“ Þannig að þú verður ánægður að finna aðeins til á eftir? „Já,“ sagði aðalstýrimaður sóttvarnaaðgerða landsins undanfarið rúmt ár. Sigríður Dóra Magnúsdóttir framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu var hæstánægð með framkvæmdina á stærsta bólusetningardeginum til þessa.Stöð 2/Arnar Sigríður Dóra Magnúsdóttir framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu fylgdist með framkvæmdinni í dag. „Þetta er fólk milli sextugs og sjötugs. Bæði sem er með undirliggjandi áhættuþætti eða líka bara almennir borgarar. Þannig að þetta er allt saman fólk yfir sextugt sem er að koma hingað í bólusetningu í dag.“ Og þetta er mesti fjöldi sem verið hefur? „Þetta er mesti fjöldi sem verið hefur. Þetta er stærsti dagurinn hingað til,“ sagði Sigríður Dóra þótt níu þúsunda markið hafi ekki alveg náðst þegar upp var staðið. En stefnt er að því að bólusetja annan eins fjölda fólks á morgun. Her hjúkrunarfræðinga hefur haft í nógu að snúast undanfarnar vikur og mánuði við bólusetningarnar. Þær Melkorka Árný Kvaran og Berglind Guðmundsdóttir voru í sólskinsskapi í dag enda sögðu þær fólk almennt svo jákvætt og þakklátt. Þegar við ræddum við þær í dag sögðust þær hafa bólusett um þúsund manns það sem af var liðið degi. Hjúkrunarfræðingarnir Melkorka Árný Kvaran og Berglind Guðmundsdóttir (t.h) voru hressar í Höllinni í dag þegar þær höfðu bólusett um þúsund manns þegar þar var komið í morgun.Stöð 2/Arnar Hvað tekur að meðaltali langan tíma að bólusetja hvern og einn? „Þetta eru svona tíu sekúndur. Fimm til tíu sekúndur. Ótrúlega mannvænar og góðar nálar þannig að fólk finnur ekki fyrir þessu,“ sagði Berglind. Sumir spyrðu jafnvel undrandi á eftir hvort virkilega væri búið að sprauta það. Mér finnst þið fara svo djúpt með nálina? „Já við þurfum að fara inn í vöðva. Við erum að sprauta í vöðva. Þannig að við förum alveg í vöðvann til að efnið skili sér,“ sagði Melkorka Árný. Þær stöllur sögðust ekki hafa orðið vitni að því að það liði yfir fólk og áréttuðu að ef eitthvað kæmi upp á væri heilbrigðisstarfsfólk til reiðu og sjúkrabíll rétt utan við húsið. Árni Friðleifsson aðalvarðstjóri í umferðardeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu stýrði flæði fólks í gegnum Laugardalshöll í dag eins og sá blíði herforingi sem hann alltaf er.Vísir/Vilhelm Árni Friðleifsson aðalvarðstjóri í umferðardeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er öllu vanari að stýra umferðinni á mórorhjóli hjá lögreglunni en bólusetningum innanhúss. Hann sagði brosandi að nauðsynlegt væri að hafa aga í kerfinu. En er þetta eins og að stýra umferð? „Já þetta er dálítið svipað. Maður þarf bara að taka ökumenn ..... og alveg hingað út að enda að lögreglumanninum. Svo eltið þið bara næsta og svo koll af kolli. Elta bara og setjast við hliðina á næsta manni,“ sagði Árni þar sem hann stýrði mannfjöldanum og talaði samtímis við fréttamann og fólk í þrammandi röð. Þetta gengur eins og smurð maskína? „Já, já. Þetta er skemmtilegt verkefni. Allir jákvæðir og til í þetta,“ sagði Árni Friðleifsson og var síðan horfinn inn í mannfjöldan að vísa fólki leiðina að lausum sætum.
Bólusetningar Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Reykjavík Tengdar fréttir Þórólfur vonast eftir að fá aukaverkanir Sneisafull Laugardalshöllin tók á móti Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni með dúndrandi lófataki þegar hann gekk í salinn til að fá bólusetningu við covid 19 í morgun. Hann vonast til að finna til einkenna eftir fyrstu sprautuna enda þýði það að ónæmiskerfi líkamans sé að taka við sér. 28. apríl 2021 12:20 Klappað fyrir Þórólfi í Laugardalshöllinni Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, var bólusettur í dag. Bólusetningin fór fram í Laugardalshöll og fékk Þórólfur fyrsta skammt sinn af bóluefni AstraZeneca. 28. apríl 2021 10:15 Svandís bjartsýn afléttingu takmarkana samhliða auknum bólusetningum Heilbrigðisráðherra segir unnið að því að útfæra bólusetningardagatalið þannig að fólk á öllum aldri geti séð nokkurn veginn hvenær það megi reikna með að fá bólusetningu við covid 19. Í dag var birt áætlun um afléttingu sóttvarnaaðgerða samhliða fjölgun fólks sem verið hefur bólusett. 27. apríl 2021 19:21 Mest lesið „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Innlent Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Erlent Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Innlent Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Innlent Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Innlent Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Heilsu Haralds konungs hrakar Erlent Færir Selenskí eldflaugateikningar Erlent Fleiri fréttir Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Sjá meira
Þórólfur vonast eftir að fá aukaverkanir Sneisafull Laugardalshöllin tók á móti Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni með dúndrandi lófataki þegar hann gekk í salinn til að fá bólusetningu við covid 19 í morgun. Hann vonast til að finna til einkenna eftir fyrstu sprautuna enda þýði það að ónæmiskerfi líkamans sé að taka við sér. 28. apríl 2021 12:20
Klappað fyrir Þórólfi í Laugardalshöllinni Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, var bólusettur í dag. Bólusetningin fór fram í Laugardalshöll og fékk Þórólfur fyrsta skammt sinn af bóluefni AstraZeneca. 28. apríl 2021 10:15
Svandís bjartsýn afléttingu takmarkana samhliða auknum bólusetningum Heilbrigðisráðherra segir unnið að því að útfæra bólusetningardagatalið þannig að fólk á öllum aldri geti séð nokkurn veginn hvenær það megi reikna með að fá bólusetningu við covid 19. Í dag var birt áætlun um afléttingu sóttvarnaaðgerða samhliða fjölgun fólks sem verið hefur bólusett. 27. apríl 2021 19:21