Maríjon snýr aftur í einkageirann Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 10. maí 2021 09:16 Maríjon Ósk Nóadóttir hefur hafið störf hjá Kvis. Maríjon Ósk Nóadóttir hefur verið ráðin til almannatengslafyrirtækisins Kvis og kemur til með að sinna fjölmiðla- og lögfræðiráðgjöf hjá fyrirtækinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kvis.
Maríjon sem er með meistaragráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands kemur yfir til Kvis frá Póst- og fjarskiptastofnun. Þar starfaði hún síðastliðin sex ár sem lögfræðingur og sinnti meðal annars úrlausn ágreiningsmála og almennri ráðgjöf á fjarskiptasviði. Áður en hún hóf störf hjá Póst- og fjarskiptastofnun vann hún sem fulltrúi hjá Nordik lögfræðiþjónustu. „Ég er mjög spennt að vera komin aftur yfir í einkageirann og tekst með glöðu geði á við öll þau verkefni sem fjölmiðlaheimurinn hefur upp á að bjóða. Reynsla mín og þekking á fjarskiptaumhverfinu mun einnig koma sér vel þar sem að fjölmiðlar og fjarskipti eru sífellt meira að tvinnast saman. Það eru spennandi tímar framundan,“ segir Maríjon Ósk í tilkynningu. Kvis var stofnað árið 2015 og sérhæfir sig í almannatengslum og ráðgjöf á sviði fjölmiðlunar en á meðal viðskiptavina fyrirtækisins eru Malbikstöðin, Netflix og Securitas. „Það er mikill fengur í Maríjon fyrir núverandi og verðandi viðskiptavini og veit ég það manna best eftir sameiginlega skólagöngu og áralangt samstarf með henni. Hún er ákveðin, skemmtileg og öflug kona og ekki skemmir svo fyrir að við þurfum báðar að lifa með því að eiga engar nöfnur. Við skiljum hvor aðra,“ segir Hödd Vilhjálmsdóttir framkvæmdastjóri Kvis.
Vistaskipti Auglýsinga- og markaðsmál Mest lesið Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Viðskipti innlent „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Viðskipti innlent Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Nýr framkvæmdastjóri Kalon Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Samstarf Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Viðskipti innlent Verðhækkanirnar vonbrigði Viðskipti innlent Þórunn og Svali til Íslandsbanka Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Sjá meira