Fær um níu milljónir frá Arion banka Snorri Másson skrifar 18. júní 2021 21:52 Arion banki tapaði gegn fyrrverandi starfsmanni í Landsrétti. Vísir Landsréttur hefur dæmt Arion banka til að greiða fyrrverandi starfsmanni bankans um níu milljónir króna vegna fyrirvaralausrar uppsagnar árið 2016. Uppsögnin var að mati starfsmannsins ólögmæt og meiðandi í hans garð, en bankinn taldi starfsmanninn hafa brotið alvarlega gegn starfsskyldum sínum.
Starfsmaðurinn vann á árunum 2010 til 2015 fyrir annað félag samhliða störfum sínum fyrir bankann, þvert á ráðningarsamning. Bankinn sagði starfsmanninum upp í tengslum við rannsókn lögreglu á meintum glæpum hans og bar því einnig við að hann teldist hafa brotið ráðningarsamninginn með því einu að starfa fyrir annað félag. Einnig taldi bankinn starfsmanninn hafa notið óeðlilegra kjara í viðskiptum sínum við AFL sparisjóð, sem var í eigu bankans. Þannig taldi bankinn starfsmanninn ekki aðeins hafa farið á svig við samninginn með því að starfa fyrir annað félag, heldur að starfsmaðurinn hefði beinlínis gerst sekur um refsiverða háttsemi. Starfsmaðurinn var ekki ákærður í tengslum við meinta refsiverða háttsemi á sínum tíma og málið var látið niður falla eftir handtöku og rannsókn. Arion banki vildi að fyrirvaralaus uppsögnin yrði réttlætt með því að starfsmaðurinn hafi notið sérkjara hjá sparisjóðnum í störfum sínum fyrir annað félag. Dómurinn féllst ekki á að skýrt hafi verið að hann hafi notið þeirra kjara, þannig að þau sjónarmið voru ekki tekin gild. Því þurfti Arion banki að greiða uppsagnarfrestinn. Héraðsdómur hafði áður sýknað Arion banka af kröfum starfsmannsins um launin. Landsréttur sneri því við eftir að starfsmaðurinn áfrýjaði málinu.
Íslenskir bankar Dómsmál Vinnumarkaður Tengdar fréttir Rannsókn á ís vegna veikinda sakbornings AFL sparisjóður er í dag hluti af Arion banka, en þegar sparisjóðurinn sameinaðist bankanum var farið að skoða bókhald sjóðsins og vaknaði þá grunur um misferli. 29. mars 2017 07:00 Rannsókn á meintum fjárdrætti á Siglufirði er nú á lokametrunum Rannsóknin hafði legið á ís vegna alvarlegra veikinda Magnúsar Jónassonar. 9. janúar 2018 06:00 Mest lesið „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Sjá meira
Rannsókn á ís vegna veikinda sakbornings AFL sparisjóður er í dag hluti af Arion banka, en þegar sparisjóðurinn sameinaðist bankanum var farið að skoða bókhald sjóðsins og vaknaði þá grunur um misferli. 29. mars 2017 07:00
Rannsókn á meintum fjárdrætti á Siglufirði er nú á lokametrunum Rannsóknin hafði legið á ís vegna alvarlegra veikinda Magnúsar Jónassonar. 9. janúar 2018 06:00