Verð á „þjóðarrétti Íslendinga“ hækkar úr 770 krónum í 850 krónur Atli Ísleifsson skrifar 5. júlí 2021 11:32 Guðrúnu Kristmundsdóttir, eigandi og framkvæmdastjóri Bæjarins beztu, segir að rekja megi hækkunina til hækkandi aðfangskostnaðar. Vísir/Vilhelm Bæjarins beztu pylsur hafa hækkað verð á pylsunni hjá sér um fimmtíu krónur og kostar hún nú 550 krónur.
Fréttablaðið greinir frá þessu og hefur eftir Guðrúnu Kristmundsdóttur, eiganda og framkvæmdastjóra. Þetta er í annað sinn á fáeinum mánuðum sem Bæjarins beztu hækkar verð á pylsunni, en í nóvember hækkaði verðið úr 470 krónum í sléttar 500 krónur. Guðrún segir í samtali við Vísi að verðhækkunina nú megi fyrst og fremst rekja til hækkandi kostnaðar aðfanga. Verð hjá birgjum hafi hækkað sem skili sér til þeirra. Sömuleiðis hafi plastgjald áhrif, en Bæjarins beztu notar enn plaströr og plastlok og segir Guðrún að unnið sé að lausn hvað það varðar. Guðrún segir að verð á gosi hafi sömuleiðis hækkað nú, úr 270 krónum í 300 krónur. Verð á því sem margir hafa kallað „þjóðarréttur Íslendinga“ – pylsa og kók – hefur því með breytingunum hjá Bæjarins bestu hækkað úr 770 krónum í 850 krónur.
Reykjavík Veitingastaðir Mest lesið Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Fleiri fréttir Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Súperdósin snýr aftur Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Löggan bankaði upp á á skírdag „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Gjaldskylda sett á við Egilshöll Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Skattalækkanir vinni beinlínis gegn Seðlabankanum Sjá meira