Seðlabankinn eigi að halda stýrivöxtum óbreyttum Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 14. ágúst 2026 12:02 Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Vísir/Vilhelm Samtök iðnaðarins segja að sterk rök séu fyrir því að peningastefnunefnd Seðlabankans haldi stýrivöxtum óbreyttum. Núverandi staða í efnahagsmálum kalla á þjóðarsátt að mati samtakanna sem segja að á næstu vikum muni liggja fyrir upplýsingar sem geti haft afgerandi áhrif á verðbólguhorfur.
Peningastefnunefnd Seðlabankans mun kynna vaxtaákvörðun sína næstkomandi miðvikudag 19. ágúst en stýrivextir hafa verið hækkaðir í tvígang á þessu ári og standa nú í 7,75 prósentum. Helstu greiningaraðilar á borð við Íslandsbanka hafa spáð því að nefndin muni kynna hækkun upp á 0,25 stig sökum þrálátrar verðbólgu og hárra verðbólguvæntinga en verðbólga mældist í júlí 5,3 prósent, 0,1 stigi meira en mánuðinn á undan. Í yfirlýsingu Samtaka iðnaðarins segja samtökin sterk rök vera fyrir því að stýrivöxtum verði haldið óbreyttum. Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri samtakanna segir þrennt vega þyngst. „Í fyrsta lagi þá er aðhaldið þegar mikið og hagkerfið er að kólna. Við sjáum það til dæmis bara á væntingum fram í tímann, væntingavísitalan hefur ekki verið lægri síðan á tímum heimsfaraldurs og þar áður eftir hrun og það sama gildir um stjórnendur fyrirtækja, þannig það gildir minni bjartsýni.“ Í öðru lagi hafi samtökin áhyggjur af því að vaxtahækkun nú muni vinna gegn markmiði peningastefnunnar. „Við sjáum það hvernig vanskilahlutfall byggingariðnaðar hefur vaxið hratt það sem af er ári, þannig það er sótt að fjárfestingum. Og svo í þriðja lagi eru þrír afgerandi þættir sem liggja fyrir fljótlega, það er endurskoðun kjarasamninga, fjárlagafrumvarp 8. september og síðan er þjóðaratkvæðagreiðsla núna í lok mánaðar, þannig að við teljum rétt að skýr og trúverðug framsýn leiðsögn henti þessum aðstæðum betur heldur en að hækka vextina.“ Í núverandi stöðu sé þörf á þjóðarsátt þar sem hagstjórnaraðilar stilli saman strengi sína. „Ólíkir aðilar þurfa að koma saman til að finna samhljóm. Við glímum við efnahagsvanda. Það er margt mjög gott á Íslandi og framtíðin er björt en hinsvegar kallar staðan núna á aðgerðir og athygli. Það þarf að auka samkeppnishæfni, þannig þetta eru tvö meginviðfangsefni núna, ná tökum á efnahagsmálum annars vegar og auka samkeppnishæfnina hinsvegar.“
Mest lesið „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ Viðskipti innlent Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum Viðskipti innlent „Biðin er dýrust“ Viðskipti innlent Innkalla frosin hindber eftir að skordýr fannst í pokanum Neytendur Kalla inn pylsur vegna prentvillu Neytendur Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Viðskipti innlent Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Viðskipti innlent Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Viðskipti innlent Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Viðskipti innlent Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Sjá meira