Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 14. ágúst 2026 12:02 Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Vísir/Vilhelm Samtök iðnaðarins segja að sterk rök séu fyrir því að peningastefnunefnd Seðlabankans haldi stýrivöxtum óbreyttum. Núverandi staða í efnahagsmálum kalla á þjóðarsátt að mati samtakanna sem segja að á næstu vikum muni liggja fyrir upplýsingar sem geti haft afgerandi áhrif á verðbólguhorfur.
Peningastefnunefnd Seðlabankans mun kynna vaxtaákvörðun sína næstkomandi miðvikudag 19. ágúst en stýrivextir hafa verið hækkaðir í tvígang á þessu ári og standa nú í 7,75 prósentum. Helstu greiningaraðilar á borð við Íslandsbanka hafa spáð því að nefndin muni kynna hækkun upp á 0,25 stig sökum þrálátrar verðbólgu og hárra verðbólguvæntinga en verðbólga mældist í júlí 5,3 prósent, 0,1 stigi meira en mánuðinn á undan. Í yfirlýsingu Samtaka iðnaðarins segja samtökin sterk rök vera fyrir því að stýrivöxtum verði haldið óbreyttum. Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri samtakanna segir þrennt vega þyngst. „Í fyrsta lagi þá er aðhaldið þegar mikið og hagkerfið er að kólna. Við sjáum það til dæmis bara á væntingum fram í tímann, væntingavísitalan hefur ekki verið lægri síðan á tímum heimsfaraldurs og þar áður eftir hrun og það sama gildir um stjórnendur fyrirtækja, þannig það gildir minni bjartsýni.“ Í öðru lagi hafi samtökin áhyggjur af því að vaxtahækkun nú muni vinna gegn markmiði peningastefnunnar. „Við sjáum það hvernig vanskilahlutfall byggingariðnaðar hefur vaxið hratt það sem af er ári, þannig það er sótt að fjárfestingum. Og svo í þriðja lagi eru þrír afgerandi þættir sem liggja fyrir fljótlega, það er endurskoðun kjarasamninga, fjárlagafrumvarp 8. september og síðan er þjóðaratkvæðagreiðsla núna í lok mánaðar, þannig að við teljum rétt að skýr og trúverðug framsýn leiðsögn henti þessum aðstæðum betur heldur en að hækka vextina.“ Í núverandi stöðu sé þörf á þjóðarsátt þar sem hagstjórnaraðilar stilli saman strengi sína. „Ólíkir aðilar þurfa að koma saman til að finna samhljóm. Við glímum við efnahagsvanda. Það er margt mjög gott á Íslandi og framtíðin er björt en hinsvegar kallar staðan núna á aðgerðir og athygli. Það þarf að auka samkeppnishæfni, þannig þetta eru tvö meginviðfangsefni núna, ná tökum á efnahagsmálum annars vegar og auka samkeppnishæfnina hinsvegar.“
Verðlag Efnahagsmál Seðlabankinn Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira