Barist um Norðurlandið og lífsnauðsynleg stig í beinni í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. ágúst 2021 15:30 Þór/KA stelpur sjást hér í leik á móti Breiðabliki í Kópavogi en þær eru enn að bíða eftir fyrsta heimasigri sínum í sumar. Vísir/Hulda Margrét Þór/KA hefur enn ekki unnið heimaleik í Pepsi Max deild kvenna í sumar og í kvöld er komið að baráttunni um Norðurlandið þegar Stólarnir koma í heimsókn í Þorpið.
Þór/KA er tveimur sætum og fjórum stigum á undan nágrönnum sínum í Tindastól en gestirnir frá Sauðárkróki gætu minnkað forskotið í eitt stig í kvöld og eiga síðan leik inni á Þór/KA liðið. Þar sem Tindastóll situr í fallsæti þá er ljóst að það eru lífsnauðsynleg stig í boði fyrir bæði liðin. Heimavöllurinn hefur oftast verið einn af styrkleikum Þór/KA liðsins en nú er liðið það eina í deildinni sem hefur ekki unnið heimaleik í sumar. Leikur Þór/KA og Tindastóls hefst klukkan 18.00 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Það var mikil dramatík í fyrri leik liðanna á Króknum. Murielle Tiernan kom Tindastól yfir í 1-0 á 21. mínútu og þannig var staðan í fimmtíu mínútur eða þar til að varamaðurinn Sandra Nabweteme jafnaði metin tveimur mínútum eftir að hún kom inn á völlinn. Nabweteme var ekki hætt því hún skoraði sigurmarkið á fjórðu mínútu í uppbótatíma og Þór/KA stelpur fóru heim með þrjú stig. Þór/KA hefur aðeins unnið einn sigur síðan og hann kom á móti botnliði Keflavíkur. Tindastólsliðið hefur unnið fleiri leiki síðan þá en er samt neðar í töflunni. Hér skiptir máli að þrátt fyrir fáa sigurleiki þá hafa norðanstelpur aðeins tapað einum af síðustu átta leikjum sínum en sex þeirra hafa bara endað með jafntefli.
Pepsi Max-deild kvenna Þór Akureyri KA Tindastóll Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Fleiri fréttir ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Hver var í flottustu treyjunni? Tufegdzic bræður til Malmö Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Draumurinn að rætast Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Sjá meira