Þinghúsið í Washington: Herða öryggi fyrir samkomu til stuðnings rósturseggja Þorgils Jónsson skrifar 12. september 2021 10:35 Ráðgert er að setja upp girðingar í kringum þinghúsið í Washington, í aðdraganda mótmæla sem fara eiga fram um næstu helgi. Áformað er að herða á öryggisráðstöfunum í kringum þinghúsið í Washingtonborg fyrir næstu helgi þegar hinir ýmsu öfgahópar hliðhollir Donald Trumps fyrrverandi forseta hyggjast koma saman.
Tveggja metra háar girðingar verða að öllum líkindum reistar í kringum þinghúsið auk þess sem lögreglufólki verður heimilað að beita vopnavaldi til að verja þingmenn og starfsfólk. Þessi samkoma er skipulögð til stuðnings þeim rúmlega 600 einstaklingum sem sæta ákærum fyrir framferði sitt í óeirðunum við þinghúsið hinn 6. janúar síðastliðins. Er þess krafist að fólkinu verði sleppt úr haldi. Þá söfnuðust þúsundir stuðningsmanna Trumps saman til að þrýsta á repúblikana á þingi og Mike Pence varaforseta að staðfesta ekki sigur Joe Bidens í forsetakosningunum. Eftir fundinn hélt mannfjöldinn fylktu liði að þinghúsinu þar sem ástandið stigmagnaðist og stór hópur mótmælenda óð yfir öryggistálma og réðist til inngöngu í þinghúsið. Í róstunum slösuðust fjölmargir lögreglumenn og einn mótmælandi var skotinn til bana. Degi síðar lést einn lögreglumaður, en síðan þá hafa fjórir lögreglumenn svipt sig lífi.
Bandaríkin Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Lögreglan lýsir eftir Ingu Rún Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira