Börsungar aftur á sigurbraut 26. september 2021 16:19 Barcelona vann öruggan sigur í dag. David Ramos/Getty Images Barcelona vann í dag öruggan 3-0 sigur gegn Levante í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Fyrir leikinn höfðu Börsungar aðeins unnið tvo af fyrstu fimm leikjum tímabilsins, en eru nú að rétta sinn hlut. Það dró til tíðinda strax á sjöttu mínútu þegar að Nemanja Radoja braut á Memphis Depay innan vítateigs. Depay fór sjálfur á punktinn og skoraði af öryggi framhjá Aitor í marki Levante. Luuk de Jong tvöfaldaði forystu heimamanna á 14. mínútu eftir stoðsendingu frá Sergino Dest og staðan var því 2-0 í hálfleik. Börsungar voru mun sterkari aðilinn í seinni hálfleik, líkt og í þeim fyrri, og það skilaði sér loksins á 91. mínútu þegar að Ansu Fati gulltryggði 3-0 sigur Barcelona sem er nú í fimmta sæti með 12 stig eftir sex leiki. Levante er hins vegar enn í leit að sínum fyrsta sigri á tímabilinu, en liði situr í 17. sæti með fjögur stig. Spænski boltinn
Uppgjörið: Víkingur - Fram 5-0 | Elías Már með þrennu í stórsigri Víkings í toppslagnum Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: Breiðablik - KA 3-1| Mikilvægur sigur Blika en vandræði KA halda áfram Íslenski boltinn
Uppgjörið: ÍBV-Stjarnan 2-1| Endurkomusigur Eyjamanna og uppskerubrestur Stjörnunnar Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: FH - Þór Ak. 1-1| Úrslit sem gera lítið fyrir bæði lið í fallbaráttunni Íslenski boltinn