Fannst Mourinho gera stórkostlega hluti hjá Tottenham Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. september 2021 17:30 Tony Adams fannst José Mourinho vera á réttri leið með Tottenham. Forráðamenn liðsins voru því ósammála og ráku hann í vor, nokkrum dögum fyrir úrslitaleik deildabikarsins. getty/Clive Brunskill Tony Adams, fyrrverandi fyrirliði Arsenal, segir að Tottenham hafi gert stór mistök þegar José Mourinho var látinn fara frá félaginu. Hann hafi gert stórkostlega hluti þar.
Mourinho var rekinn frá Tottenham í apríl eftir sautján mánuði í starfi. Ryan Mason stýrði Spurs út síðasta tímabil og Nuno Espirito Santo tók svo við liðinu í sumar. Ekki voru allir ánægðir með stjóratíð Mourinhos hjá Tottenham en hann fékk stuðning úr óvæntri átt í gær, frá sjálfum Tony Adams sem fór yfir leik Tottenham og Arsenal á Sky Sports. Skytturnar unnu öruggan sigur, 3-1. „Mér fannst Mourinho reyndar gera stórkostlega hluti hjá Spurs. En ég hugsaði aldrei um hann sem Tottenham-stjóra. Hann var ekki nógu sóknarsinnaður fyrir þá en hann var að hnoða þessu saman,“ sagði Adams. „Þeir voru með gott leikskipulag sem þeir eru ekki með núna svo ég vil vera í búningsklefanum hjá Arsenal.“ Tottenham byrjaði tímabilið af krafti og vann fyrstu þrjá leiki sína í ensku úrvalsdeildinni. Síðustu þrír leikir hafa hins vegar tapast með markatölunni 1-9 og farið er að hitna undir Nuno. Mourinho tók við Roma í sumar. Liðið tapaði fyrir Lazio, 3-2, í Rómarslag í gær. Roma er í 4. sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar.
Enski boltinn Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fleiri fréttir „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Áfram skorar Andri Lucas „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Sjá meira