Aþena í beinni sjónvarpsútsendingu í fyrsta sinn í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. október 2021 15:16 Brynjar Karl Sigurðsson er yfirþjálfari hjá Aþenu. Þar þjálfar hann meðal annars stelpur sem hann þjálfaði áður hjá ÍR og Stjörnunni, eins og fjallað var um í heimildarmyndinni Hækkum rána. Skjámynd Körfuboltafélagið Aþena UMFK fær sinn fyrsta sjónvarpsleik í kvöld þegar Þór Akureyri kemur í heimsókn í 1. deild kvenna í körfubolta.
Aþena UMFK er á sínu fyrsta tímabili í deildinni og spilar heimaleiki sína á Akranesi. Félagið er hugarfóstur körfuboltaþjálfarans Brynjars Karls Sigurðssonar og er hann þjálfari liðsins. Körfuknattleiksfélagið Aþena leikur undir hatti Ungmennafélags Kjalnesinga. Aþena varð til árið 2019 eftir að Brynjar Karl og stelpur sem hann hafði þjálfað hættu hjá ÍR. Sumar stelpnanna þjálfaði Brynjar Karl áður hjá Stjörnunni en um þau var fjallað í heimildamyndinni Hækkum rána. Rise with Athena. pic.twitter.com/cliCwlWUtF— Athena Basketball (@AthenaBasket) September 30, 2021 Aþena UMFK hefur spilað tvo leiki á tímabilinu, vann Vestra 79-49, en tapaði á móti Ármanni, 50-87. Stigahæsti og frákastahæsti leikmaður liðsins er hin 24 ára gamla Violet Morrow frá Bandaríkjunum með 24,0 stig og 13,0 fráköst í leik en hin fjórtán ára gamla Tanja Ósk Brynjarsdóttir er stoðsendingahæst með 4,0 slíkar í leik. Þórsliðið mætir öflugt til leiks og hefur unnið tvo fyrstu leiki sína, fyrst 78-68 sigur á Ármanni og svo 79-67 sigur á Snæfelli. Hrefna Ottósdóttir er þeirra öflugust í byrjun móts með 20,5 stig og 9,5 fráköst í leik. Leikurinn í kvöld hefst klukkan 18.00 og er sýndur beint á Stöð 2 Sport.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Kristófer Acox kallar sig glæpamann Körfubolti Svona var blaðamannafundur Arnars Fótbolti Rooney að kenna að Liverpool er komið á sigurbrautina á ný? Enski boltinn Arnar Gunnlaugsson las yfir vælandi fýlupúkum hjá Real Madrid Fótbolti Mál Alberts truflar landsliðið ekki Fótbolti Hópurinn fyrir lokaleikina: Hörður og Jóhann snúa aftur Fótbolti Littler kjörinn kynþokkafyllsti íþróttamaður heims Sport Foden í stuði gegn Dortmund Fótbolti Davíð Smári tekur við Njarðvík Íslenski boltinn „Ég myndi ekki óska neinum þess að lenda í þessu“ Fótbolti Fleiri fréttir Valskonur niðurlægðu Íslandsmeistarana KR - Grindavík 68-85 | Gestirnir á toppinn Tryggvi með flest fráköst í Evrópusigri Sjaldgæf 30-20-10 þrenna í Síkinu í gær Sömu félög að spila í tveimur íþróttum í sama húsinu á sama tíma Kristófer Acox kallar sig glæpamann Uppgjörið: Njarðvík - Hamar/Þór 88-61 | Auðsóttur sigur Njarðvíkinga Keflavíkursigur í kaflaskiptum leik Stjarnan með þægilegan sigur á nýliðunum Hverjir eru bestu ungu strákarnir í Bónus-deildinni? Söguleg byrjun OKC á tímabilinu Íslandsmeistararnir mæta bikarmeisturunum Skagamenn senda Kanann heim Tilþrif 5. umferðar: Jukic stal senunni Ólíkar niðurstöður hjá landsliðsmönnunum Er Tóti Túrbó ofmetinn? „Gott að við gátum verið liðið sem kláraði þetta“ Erfitt kvöld fyrir Ármann og Tindastól Tvöföld tvenna Tryggva í tæpu tapi Góður lokaleikhluti tryggði Njarðvík sigurinn Styrmir með þrettán í öruggum sigri Zamora Uppgjörið: Valur - KR | 93-100 | KR hafði betur í slag Reykjavíkurstórveldanna Diljá stórkostleg í lokin í endurkomu í Hveragerði „Einn af bestu leikmönnunum í sögu íslensks körfubolta“ Hlýtur að vera alvöru krísufundur í Valsheimilinu um helgina Besta byrjun Chicago Bulls síðan Jordan var í liðinu Blikar áfram með fullt hús stiga ÍR - Ármann 96-83 | Nýliðarnir enn í leit að fyrsta sigrinum „Bara feginn að við fundum þó leið“ Tindastóll - Stjarnan 96-95 | Ótrúlegur endir á Króknum Sjá meira