Sýnishorn úr barna- og fjölskyldumyndinni Birta Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 13. október 2021 11:04 Kvikmyndin Birta verður frumsýnd 5. nóvember. Skjáskot Kvikmyndin Birta eftir Braga Þór Hinriksson er fyrsta leikna barna-og fjölskyldumyndin sem verður frumsýnd hér á landi frá því Víti í Vestmannaeyjum var sýnd árið 2018 við miklar vinsældir, einnig í leikstjórn Braga Þórs. „
Birta er bráðfyndin og hjartfólgin saga um íslenskan raunveruleika sem margir þekkja og tengja við,“ segir í tilkynningu um myndina. Sagan gerist í neðra Breiðholti og fjallar um Birtu Bjarkadóttur 11 ára, sem heyrir fyrir slysni, einstæða móður sína sem vinnur myrkrana á milli sem hjúkrunarfræðingur til að ná endum saman segja við vinkonu í símann að hún hafi ekki efni á að halda jól. Hún þurfi að minnsta kosti hundrað þúsund krónur til að geta haldið mannsæmandi jólahátíð fyrir stelpurnar sínar. Birta tekur þessum fréttum bókstaflega og ákveður að reyna bjarga jólunum fyrir mömmu og litlu systur sína Kötu sem er sex ára. Birta reynir margar leiðir til að hjálpa mömmu sinni án hennar vitneskju að afla fjár en kemst fljótt að því að það er alls ekkert einfalt mál að vinna sér inn pening, hvað þá þegar maður er ellefu ára. Með aðahlutverk í myndinni fara Kristín Erla Pétursdóttir í hlutverki Birtu, Salka Sól Eyfeld í hlutverki móður Birtu og Margrét Júlía Reynisdóttir í hlutverki systur Birtu.Aðsent Saga og handrit myndarinnar er eftir Helgu Arnardóttur og var hún framleidd af fyrirtækinu H.M.S. Productions í samstarfi við Símann, Senu og Kvikmyndamiðstöð Íslands. Með aðahlutverk fara Kristín Erla Pétursdóttir í hlutverki Birtu, Salka Sól Eyfeld í hlutverki móður Birtu og Margrét Júlía Reynisdóttir í hlutverki systur Birtu. Auk þess fara stórleikarar með önnur aukahlutverk í myndinni á borð við Margréti Ákadóttur, Harald G. Haralds, hr. Hnetusmjör Helgu Brögu Jónsdóttur, Karl Ágúst Úlfsson, Bjarna Snæbjörnsson, Elmu Lísu Gunnarsdóttir, Álfrúnu Örnólfsdóttur, Kristin Óla Haraldsson eða Króla, Hannes Óla Ágústsson, Sigurð Karlsson og fleiri. Þótt Birta hafi ekki enn verið frumsýnd á Íslandi hefur hún notið mikillar velgengni nú þegar og var heimsfrumsýnd á kvikmyndahátíðinni Giffoni við góðar viðtökur á Ítalíu í júlí síðastliðinn. Myndin hefur verið valin inn á þrettán kvikmyndahátíðir, sem margar hverjar eru þær virtustu. Birta hefur einnig verið seld til STUDIO HAMBURG til dreifingar og sölu um allan heim. Sýningar hefjast í kvikmyndahúsum Senu þann 5. nóvember og verður lokamynd Barnamyndakvikmyndahátíðarinnar í Bíó Paradís í byrjun nóvember. Stutt sýnishorn úr myndinni má sjá hér fyrir neðan. Klippa: Sýnishorn úr kvikmyndinni Birta
Kvikmyndagerð á Íslandi Mest lesið Svona er stemningin á Þingvöllum í dag Lífið Bein útsending frá Bergmáli á Þingvöllum Tónlist Dóttir Obama í íslenskri hönnun Tíska og hönnun Fólk streymi inn í þjóðgarðinn í rjómablíðu Lífið Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Lífið Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Lífið Gull og gimsteinar leynast víða Lífið James Burrows látinn Bíó og sjónvarp „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Lífið Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum Lífið Fleiri fréttir James Burrows látinn Laufey Lín er mætt til Springfield Ef meðferðarlotan beri ekki árangur verði hann ekki í næstu þáttaröð Tyra Banks kærir Netflix fyrir ærumeiðingar Ekki talað við Franco lengi og vill ekki vinna með honum aftur Þórður leikstýrir kvikmyndaútgáfu Dead by Daylight Margaret Kerry er látin Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Harbour rýfur þögnina Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno James Handy stunginn til bana af syni kærustu sinnar Biðst afsökunar á áratugagömlu gríni með „blackface“ Youtube-leikstjórar kaffærðu Stjörnustríði Stjörnustríðs-leynivopnið Marcia Lucas látin Ástin sem eftir er sigursælust á Eddunni „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Barátta við fíkn, íslensk millistétt og æðavarp á Skjaldborg Rick og Morty á stóra skjáinn Nítján ára þegar Óskarsverðlaunahafi sýndi henni punginn Dóra og Glassriver náðu samkomulagi Stefnir Cameron fyrir að stela andliti hennar Tvær þáttaraðir og tvær myndir á leiðinni frá Vesturporti Andri Snær verðlaunaður og ný stikla fyrir Um tímann og vatnið Sjá meira