Segir að Stjarnan fái ekki Heimi Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. október 2021 15:32 Heimir Hallgrímsson kom íslenska karlalandsliðinu á tvö stórmót. vísir/vilhelm Heimir Hallgrímsson verður ekki næsti þjálfari karlaliðs Stjörnunnar. Þetta segir Hjörvar Hafliðason, þáttastjórnandi Dr. Football.
Heimir hefur verið orðaður við Stjörnuna að undanförnu. Eyjamaðurinn vildi ekki tjá sig um orðróminn í samtali við Vísi en sagðist hafa átt í viðræðum við fjölmörg félög, bæði hér á landi og erlendis. Möguleikinn á að Heimir taki við Stjörnunni virðist hins vegar vera úr sögunni ef marka má færslu Hjörvars á Twitter í dag. „Heimir Hallgrímsson verður ekki þjálfari Stjörnunnar. Mjög metnaðarfull tilraun Garðbæinga og munaði litlu segja menn á Garðaflötinni. Núna eru Stjörnumenn í alvöru veseni með að finna þjálfara,“ skrifaði Hjörvar. Heimir Hallgrímsson verður ekki þjálfari Stjörnunnar. Mjög metnaðarfull tilraun Garðbæinga og munaði litlu segja menn á Garðaflötinni. Núna eru Stjörnumenn í alvöru veseni með að finna þjálfara.— Hjörvar Hafliðason (@hjorvarhaflida) October 14, 2021 Heimir hefur verið án starfs síðan hann hætti hjá Al Arabi í Katar síðasta vor. Hann stýrði áður íslenska karlalandsliðinu í sjö ár, fyrst sem aðstoðarþjálfari í tvö ár, eftir að hafa þjálfað karla- og kvennalið ÍBV heima í Vestmannaeyjum. Stjarnan hóf síðasta tímabil undir stjórn Rúnars Páls Sigmundssonar en hann hætti óvænt eftir fyrsta leik liðsins í Pepsi Max-deildinni. Þorvaldur Örlygsson færðist þá úr stöðu aðstoðarþjálfara og stýrði Stjörnunni út leiktíðina en hætti svo og gerðist rekstarstjóri knattspyrnudeildar félagsins. Stjarnan endaði í 7. sæti Pepsi Max-deildarinnar á síðasta tímabili.
Pepsi Max-deild karla Stjarnan Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir Hvolsvellingur og EM-fari í Stjörnuna FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Sjá meira