Aron og félagar snéru taflinu við í seinni hálfleik Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 30. október 2021 15:50 Aron Pálmarsson var frábær í dag. EPA-EFE/RENE SCHUETZE Aron Pálmarsson og félagar hans í Álaborg unnu góðan endurkomusigur er liðið heimsótti Bjerringbro-Silkeborg í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Eftir að hafa verið fimm mörkum undir í hálfleik komu Aron og félagar til baka og unnu góðan eins marks sigur, 31-30.
Aron og félagar byrjuðu vægast sagt illa og voru fljótt lentir sjö mörkum undir, 11-4. Liðið náði aðeins að laga stöðuna fyrir hálfleik, en þegar gengið var til búningsherbergja var staðan 16-11, heimamönnum í vil. Álaborgarliðið mætti grimmara til leiks í seinni hálfleik og minnkaði muninn jafnt og þétt. Þegar um fimm mínútur voru til leiksloka náðu þeir loksins að jafna metin og unnu svo að lokum virkilega sterkan eins marks sigur, 31-30. Aron átti góðan leik í liði Álaborgar og skoraði fjögur mörk, ásamt því að leggja upp önnur fimm fyrir liðsfélaga sína. Þá heimsóttu Ágúst Elí Björgvinsson og félagar hans í Kolding Viktor Gísla Hallgrímsson og félaga hans í GOG. Ágúst Elí varði átta skot í marki Kolding og var með um 30 prósent markvörslu, en það dugði ekki til því liðið tapaði 32-27. Viktor Gísli kom ekki við sögu í leiknum.
Danski handboltinn Mest lesið Tilkynnt um andlát pabba strax eftir tapið Enski boltinn Sjáðu afmælisstrákinn tryggja titilinn og tvöfalt klúður Kepa Enski boltinn „Það var erfitt að anda“ Íslenski boltinn Albert og félagar trufluðu topplið Inter Fótbolti Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Íslenski boltinn Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Fótbolti Arteta sér ekkert eftir valinu: „Hver sem er getur gert mistök“ Enski boltinn Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Fótbolti 41 árs Birkir fær loks að spila með bróður sínum Íslenski boltinn Á sjúkrahús eftir yfirlið á landsleiknum Handbolti Fleiri fréttir HK flaug upp í Olís-deildina Ósáttur við sóknina í fyrri hálfleik: „Fannst við of hægir og staðir“ „Getum ekki alltaf spilað á sama liðinu“ Uppgjörið: Ísland - Svíþjóð 27-30 | Gamlir draugar létu á sér kræla Á sjúkrahús eftir yfirlið á landsleiknum Dramatísk endurkoma Stjörnunnar felldi Selfoss Þórir ráðleggur þjálfurum Noregs líka í þrjátíu prósent starfi Janus fær ekki að leika listir sínar í Las Vegas Strákarnir okkar spila HM þar sem Íslendingar eru dáðir og dýrkaðir „Vörnin var ekki nægilega góð og við eigum inni þar“ „Verðum að ná sigri í þessu verkefni“ Uppgjörið: Ísland - Svíþjóð 33-35 | Appelgren gerði útslagið Bronslið Dags Sig burstaði Svisslendinga í fyrsta leik eftir EM Frábært að sleppa við austantjaldið Heilluðust af Ölfu Brá á HM og sömdu við hana Mætir með vænt glóðarauga: „Þetta var smá barningur“ Berta Rut snýr heim í Hauka Deildarmeistarar Vals unnu nauman sigur fyrir norðan Uppgjörið: Stjarnan - Fram 34-34 | Stjarnan heldur lífi í fallsætisbaráttunni „Ekki endilega það sem maður vildi“ Leiðtoginn Sigvaldi fer til Þýskalands Alfreð með skýrt svar: „Þeir verða að ráða framhaldinu“ Strákarnir okkar slógu í gegn í Smáralindinni „Allt of snöggur og óvæntur endir“ Hægt að hitta handboltahetjurnar í dag Enginn slaki gefinn Hótar eigin leikmönnum og þjálfurum Ísak dró sig úr hópnum gegn Svíum VIP-miðar í boði til að komast nær strákunum okkar Viggó og Andri fengu skell gegn meisturunum Sjá meira