Handbolti

Reynir Þór og fé­lagar töpuðu með einu marki í mikilli dramatík

Andri Broddason skrifar
Reynir Þór Stefánsson var markahæstur hjá Melsungen.
Reynir Þór Stefánsson var markahæstur hjá Melsungen.

Reynir Þór Stefánsson var markahæsti leikmaður Melsungen þegar liðið fór í heimsókn til pólska liðsins Wisla Plock í Meistaradeild Evrópu karla í handbolta. Leikurinn endaði með 25-24 tapi Melsungen eftir dramatískar lokamínútur.

Reynir Þór er búinn að vera lykilmaður Melsungen á tímabilinu og sýndi það strax í upphafi leiks en hann var búinn að skora fimm mörk í leiknum þegar rétt rúmar 20 mínútur voru búnar. Þetta voru mikilvæg mörk því leikurinn var gríðarlega jafn.

Melsungen var með tveggja marka forskot í hálfleik en heimamenn í Wisla Plock voru fljótir að jafna leikinn í seinni hálfleik. Í seinni hálfleik var munurinn á milli liðanna aldrei meiri en tvö mörk og því skipti hvert mark miklu máli.

Staðan var jöfn þegar innan við mínúta var eftir af leiknum og var Melsungen með boltann. Mikil örvænting var á liðinu til að koma sigurmarkinu en Reynir Þór endaði á því að missa boltann. Wisla Plock reyndi að svara með sínu sigurmarki.

Heimamennirir náðu að skora en örlítill tími var eftir sem Melsungen ætlaði að reyna að nýta til hins ýtrasta. Hans Aaron Mensing tók lokaskotið fyrir Melsungen en það geigaði og þurfti liðið að sætta sig við svekkjandi tap.

Reynir Þór var markahæstur í liði Melsungen með sjö mörk en aðeins 58 prósent skotnýtingu. Hann var næstmarkahæsti leikmaður leiksins en Frederik Bjerre, leikmaður Wisla Plock, skoraði níu mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×