MMA bardagaklúbbur opnar í World Class World Class 13. janúar 2022 08:51 Arnar Freyr Vigfússon er annar yfirþjálfara í splunkunýjum MMA bardagaklúbbi sem fer í gang í lok janúar í World Class. Splunkunýr MMA bardagaklúbbur hefur starfsemi í World Class á Tjarnarvöllum í Hafnarfirði í lok janúar. Æft verður í 800 fermetra rými við bestu aðstæður.
Arnar Freyr Vigfússon og Árni Ísaksson eru yfirþjálfarar World Class MMA klúbbsins en þá má kalla frumkvöðla bardagaíþróttasenunnar hér á landi. Arnar Freyr er m.a einn af stofnendum Mjölnis, með svarta beltið í BJJ og býr yfir nær tveggja áratuga reynslu í bæði keppnum og sem þjálfari. Arnar segir bardagaíþróttir henta öllum aldri, byggja upp sjálfstraust og þjálfa innri ró. Frumhvatirnar fá útrás „Bardagaíþróttir eru fyrir alla og hér æfir fólk í öruggu umhverfi undir stjórn þjálfara á heimsklassa. Ávinningurinn er margþættur, hreyfingin, félagsskapurinn og aukið sjálfstraust. Að æfa bardagaíþróttir kennir manni að takast á við áskoranir sem mæta manni í lífinu, einbeitingin er algjör og maður getur ekki hugsað um neitt annað á meðan. Þetta losar um streitu og hvílir hugann,“ útskýrir Arnar. Hann segir marga sem upplifað hafa áföll finna hugarró í bardagaíþróttum. „Ég byrja til dæmis sjálfur í þessu þegar ég missti móður mína 24 ára. Maður sækir í að geta gleymt sér í leik og það er nákvæmlega það sem gerist. Þarna fá frumhvatirnar útrás.“ Árni Ísaksson er annar yfirþjálfara World Class MMA. Opnir tímar og námskeið „World Class MMA verður annarsvegar opnir tímar fyrir þá sem eru þegar með grunn og vilja halda áfram að æfa og hins vegar hliðarnámskeið eins og sjálfsvarnarnámskeið og fleira. Allir byrja hins vegar á grunnnámskeiði þar sem farið er yfir hlutina skref fyrir skref. Við verðum með unglingastarf og barnastarf frá 8 ára aldri og ýmislegt fleira er í mótun,“ segir Arnar og bætir við að forvarnargildi felist í þjálfun bardagaíþrótta. „Að æfa bardagaíþróttir hefur ofboðslegt forvarnargildi fyrir unglinga. Ég hef unnið í því umhverfi erlendis, bæði í einkageiranum og í opinbera geiranum með góðum árangri.“ Boðið verður upp á unglingastarf fyrir aldurinn 13-17 ára og 8-13 ára. Aðgangur að átta sundlaugum Öllum kortum í World Class og námskeiðum fylgir aðgangur að öllum stöðvunum. Arnar segir einstakt að MMA klúbbur geti boðið upp á jafn víðtæka þjónustu. „Þeir bardagaklúbbar sem fyrir eru hér á landi bjóða ekki viðlíka þjónustu og við getum boðið hér, aðgang að átján líkamsræktarstöðvum og átta sundlaugum.“ Vaxandi sport Arnar segir vinsældir MMA hafa margfaldast undanfarin ár og Íslendingar hafi meðal annars skapað sér nafn í MMA heiminum gegnum íslenska keppendur. „Áhorf á bardagaíþróttir hefur margfaldast og MMA klúbbar hafa sprottið upp úti um allt. Ég hef verið núna í tuttugu ár í sportinu og nálgunin er ekki sú sama í dag og hún var þegar við stofnuðum Mjölni til dæmis. Til að setja hlutina í samhengi var UFC keypt á 2 milljónir dollara árið 1993 en selt á 4 milljarða dollara árið 2016,“ segir Arnar og hvetur fólk til þess að kynna sér nýja klúbbinn í World Class.
Heilsa MMA Líkamsræktarstöðvar Mest lesið Ætlaði aldrei að enda í herskóla í Bandaríkjunum Lífið „Ég er búin að fæða þrjú börn en þetta er versta sem ég hef upplifað“ Lífið Þakka aðdáendum fyrir að hafa fjármagnað nýja húsið Lífið Með höfuðið rétt skrúfað á og gleyma aldrei hjálminum Lífið Verðmiðinn hækkar á höll Antons Lífið Batinn á vefjagigt kom úr óvæntri átt Lífið samstarf BAUHAUS býður þér í glæsilega afmælisveislu! Lífið samstarf Kanye lögsækir tannlækni fyrir að gera sig háðan hláturgasi Lífið Fréttatía vikunnar: Rafmagnsleysi, njósnir og SFS Lífið Íslenski Eurovision-hópurinn lagður af stað Lífið Fleiri fréttir BAUHAUS býður þér í glæsilega afmælisveislu! Aldrei verið eins einfalt að bóka tíma Tork gaur: BMW neglir fallegan framenda Batinn á vefjagigt kom úr óvæntri átt Viltu vinna spennandi vinninga í vorleik Vísis? Tilbúnir réttir úr smiðju verðlauna kokks Sumarið er komið á Boozt Að eiga tæki frá Stihl er lífsstíll Persónuleg gjafakort sem renna aldrei út Viltu vinna skemmtilegar gjafir fyrir sumardaginn fyrsta? Ný fjarlækningaþjónusta fyrir sykursýkissjúklinga á Selfossi Fullkomnar sögur fyrir páskafríið Fyrsta 100% rafútgáfan af Porsche Macan Lúxus heilsulind á heimsmælikvarða fyrir Íslendinga Hátt í þúsund bangsar fengu hjarta fyrstu helgina Hollywood speglarnir slá í gegn Fullkomið tan og tryllt partý Krílaeggið er nýjasta páskaeggið frá Freyju Stórstjarnan Limahl mætir í N1 höllina í september Frábær fermingartilboð á hágæða sængum og koddum Polestar tekur þátt í HönnunarMars 2025 Tónlist, græjur og Ari Eldjárn í sviðsljósinu Upp á svið í háum hælum eftir Osteostrong Grillað ofan í helstu áhrifavalda landsins Sjá meira