Lærisveinar Alfreðs og Erlings töpuðu stórt Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 20. janúar 2022 18:28 Germany v Portugal - International Handball Friendly DUSSELDORF, GERMANY - NOVEMBER 07: Alfred Gislason, head coach of Germany reacts during the International Handball Friendly between Germany and Portugal at PSD Bank Dome on November 07, 2021 in Dusseldorf, Germany. (Photo by Martin Rose/Getty Images) Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í þýska landsliðinu í handbolta máttu sætta sig við sex marka tap gegn Evrópumeisturum Spánar, 29-23. Á sama tíma töpuðu Hollendingar undir stjórn Erlings Richardssonar gegn Frökkum, 34-24.
Þjóðverjar urðu fyrir barðinu á veirunni skæðu og því var Alfreð mættur með nokkuð lemstrað lið. Þrátt fyrir það tókst þýska liðinu að hanga í Evrópumeisturunum mest allan fyrri hálfleikinn, en þegar gengið var til búningsherbergja var staðan 14-12, Spánverjum í vil. Spænska liðið skoraði svo fyrstu fimm mörk síðari hálfleiks og eftir það varð róðurinn þungur fyrir þýska liðið. Spánverjar náðu mest átta marka forskoti og unnu að lokum öruggan sex marka sigur, 29-23. Þá töpuðu Erlingur Richardsson og lærisveinar hans í hollenska landsliðinu sannfærandi gegn Frökkum. Franska liðið skoraði fyrstu fimm mörk leiksins, en Hollendingar náðu þó að jafna stuttu fyrir hlé. Frakkar tóku forystuna á ný og fóru með þriggja marka forystu í hálfleik, 15-12. Franska liðið keyrði svo yfir það hollenska í síðari hálfleik og náði mest 12 marka forskoti í stöðunni 32-20. Hollenska liðið klóraði aðeins í bakkann á lokamínútunum, en lokatölur urðu 34-24, Frökkum í vil.
EM karla í handbolta 2022 Mest lesið Brasilía og Marokkó áfram en Skotar þurfa bíða Fótbolti Sögulegt afrek Suður-Afríku en Mexíkó fagnaði sérstaklega einni skiptingu Fótbolti Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Enski boltinn Martraðarvítaspyrnukeppni og lærisveinar Sigga Ragga úr leik Fótbolti Hefur komið Eiði Smára skemmtilega á óvart við HM Fótbolti „VAR fór í kaffi“ til að hjálpa „heppnum“ Englendingum Fótbolti „Ég held að við séum á heimleið“ Fótbolti Hollendingar hjálpa Frökkum við að halda Ólympíuleikana Sport Stjörnur framtíðarinnar og risaleikur Íslenski boltinn Pólitískar skoðanir ráða miklu um hvort fólk elskar Messi eða Ronaldo Fótbolti Fleiri fréttir Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Sjá meira