Tíu Madrídingar snéru leiknum við í framlengingu Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 20. janúar 2022 20:35 Eden Hazard reyndist hetja Madrídinga í kvöld. Getty/Manu Reino Real Madrid vann 2-1 endurkomusigur í framlengdum leik er liðið heimsótti Elche í 16-liða úrslitum spænsku bikarkeppninnar Copa del Rey í kvöld, þrátt fyrir að vera manni færri stóran hluta framlengingarinnar.
Madrídingar voru meira með boltann í kvöld, en illa gekk að brjóta ísinn. Bæði lið fengu nokkur hálffæri, en ekki gekk að skora í fyrri hálfleik. Sömu sögu er að segja af síðari hálfleik og enn var markalaust að venjulegum leiktíma loknum. Því þurfti að grípa til framlengingar til að skera úr um sigurvegara. Það var ekki fyrr en á 102. mínútu sem dró loksins til tíðinda. Þá fékk Marcelo, varnarmaður Real Madrid, beint rautt spjald fyrir brot sem aftasti maður. Gonzalo Verdu tók aukaspyrnuna fyrir Elche en hún fór í varnarvegginn. Bolltinn barst þó aftur fyrir lappir Verdu og í þetta sinn gerði hann engin mistök og skoraði fallegt mark. Madrídingum tókst þó að jafna leikinn þrátt fyrir að vera manni færri. Á 108. mínútu átti Daniel Ceballos skot að marki og boltinn fór af samherja hans, Isco, og þaðan í netið. Það var svo Eden Hazard sem reyndist hetja Madrídinga þegar hann spændi upp vörn heimamanna og kláraði vel framhjá Axel Werner þegar um fimm mínútur voru til leiksloka. Lokatölur urðu 2-1 og Real Madrid er því komið í áttaliða úrslit Copa del Rey, en dregið verður á morgun.
Spænski boltinn Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Scholes kallar Arsenal „f-g leiðinlegt lið“ Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Sjá meira