Kristrún og Sturla fánaberar Íslands á morgun Sindri Sverrisson skrifar 3. febrúar 2022 13:02 Kristrún Guðnadóttir keppir í skíðagöngu en Sturla Snær Snorrason í svigi og stórsvigi, á Vetrarólympíuleikunum í Peking. ÍSÍ Fimm Íslendingar verða á meðal keppenda á Vetrarólympíuleikunum í Peking sem settir verða í hádeginu á morgun að íslenskum tíma. Í dag var tilkynnt að skíðagöngukonan Kristrún Guðnadóttir og alpagreinamaðurinn Sturla Snær Snorrason yrðu fánaberar Íslands á setningarhátíðinni sem hefst klukkan 12 á morgun. Sami háttur er því hafður á og þegar Ólympíuleikarnir í Tókýó voru settir síðasta sumar, að í stað eins fánabera hjá hverri þjóð eru fánaberarnir tveir, ein kona og einn karl. Keppendur þjóðanna munu ganga inn á Þjóðarleikvanginn í Peking í röð eftir kínverska stafrófinu og mun íslenski hópurinn því koma inn um miðbik inngöngunnar. Keppendur Íslands í Peking: Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir, alpagreinar kvenna – svig, stórsvig og risasvig Sturla Snær Snorrason, alpagreinar karla – svig og stórsvig Kristrún Guðnadóttir, skíðaganga kvenna – sprettganga Snorri Einarsson, skíðaganga karla – 15km F (frjáls aðferð), 30km skiptiganga, 50km C Mst (fjöldastart, hefðbundin aðferð), liðakeppni í sprettgöngu Isak Stianson Pedersen, skíðaganga karla – sprettganga og liðakeppni í sprettgöngu Snorri Einarsson keppir fyrstur Íslendinganna í Peking, í 30 km skíðagöngu á sunnudaginn klukkan 7 að íslenskum tíma. Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir keppir svo í stórsvigi aðfaranótt 7. febrúar og Isak Stianson Pedersen og Kristrún í sprettgöngu að morgni 8. febrúar. Fyrsta grein Sturlu er stórsvig aðfaranótt 13. febrúar. Vetrarólympíuleikar 2022 í Peking Mest lesið Kristófer Acox kallar sig glæpamann Körfubolti Svona var blaðamannafundur Arnars Fótbolti Rooney að kenna að Liverpool er komið á sigurbrautina á ný? Enski boltinn Arnar Gunnlaugsson las yfir vælandi fýlupúkum hjá Real Madrid Fótbolti Mál Alberts truflar landsliðið ekki Fótbolti Hópurinn fyrir lokaleikina: Hörður og Jóhann snúa aftur Fótbolti Littler kjörinn kynþokkafyllsti íþróttamaður heims Sport Foden í stuði gegn Dortmund Fótbolti Davíð Smári tekur við Njarðvík Íslenski boltinn „Ég myndi ekki óska neinum þess að lenda í þessu“ Fótbolti Fleiri fréttir Óstöðvandi Osimhen, magurt hjá Mourinho og Bilbao brenndir Uppgjörið: KR - Grindavík 68-85 | Gestirnir á toppinn Böl Börsunga í Belgíu Foden í stuði gegn Dortmund „Leyfðum þremur leikmönnum að ganga frá okkur“ Spilaði meira en síðustu tvo mánuði til samans Nik fær Lindu Líf til Kristianstad Valskonur niðurlægðu Íslandsmeistarana Magdeburg skoraði 45 en lærisveinar Guðjóns Vals úr leik Sandra María skoraði í svekkjandi leik Emelía með þrennu gegn FCK Óvænt úrslit í Meistaradeildinni Lovísa með níu í góðum sigri Allar landsliðskonurnar komust á blað Tryggvi með flest fráköst í Evrópusigri „Mér finnst þetta ekki leiðinlegur fótbolti“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Sjaldgæf 30-20-10 þrenna í Síkinu í gær Dældi fyrri afrekum inn á Instagram eftir vonbrigðin Valdi Isak en ekki Gyökeres í fyrsta landsliðshópinn sinn Leiðir Breiðabliks og Damir skilja Mál Alberts truflar landsliðið ekki Stuðningsmenn Bröndby enn á ný í vandræðum Vonar að Jóhann og Hörður gefi jafn mikið af sér og Aron Orri Steinn lengra frá því að ná þessum leikjum en þeim í síðasta glugga Hópurinn fyrir lokaleikina: Hörður og Jóhann snúa aftur Svona var blaðamannafundur Arnars „Hann plataði mig algerlega“ Sömu félög að spila í tveimur íþróttum í sama húsinu á sama tíma Sjá meira
Í dag var tilkynnt að skíðagöngukonan Kristrún Guðnadóttir og alpagreinamaðurinn Sturla Snær Snorrason yrðu fánaberar Íslands á setningarhátíðinni sem hefst klukkan 12 á morgun. Sami háttur er því hafður á og þegar Ólympíuleikarnir í Tókýó voru settir síðasta sumar, að í stað eins fánabera hjá hverri þjóð eru fánaberarnir tveir, ein kona og einn karl. Keppendur þjóðanna munu ganga inn á Þjóðarleikvanginn í Peking í röð eftir kínverska stafrófinu og mun íslenski hópurinn því koma inn um miðbik inngöngunnar. Keppendur Íslands í Peking: Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir, alpagreinar kvenna – svig, stórsvig og risasvig Sturla Snær Snorrason, alpagreinar karla – svig og stórsvig Kristrún Guðnadóttir, skíðaganga kvenna – sprettganga Snorri Einarsson, skíðaganga karla – 15km F (frjáls aðferð), 30km skiptiganga, 50km C Mst (fjöldastart, hefðbundin aðferð), liðakeppni í sprettgöngu Isak Stianson Pedersen, skíðaganga karla – sprettganga og liðakeppni í sprettgöngu Snorri Einarsson keppir fyrstur Íslendinganna í Peking, í 30 km skíðagöngu á sunnudaginn klukkan 7 að íslenskum tíma. Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir keppir svo í stórsvigi aðfaranótt 7. febrúar og Isak Stianson Pedersen og Kristrún í sprettgöngu að morgni 8. febrúar. Fyrsta grein Sturlu er stórsvig aðfaranótt 13. febrúar.
Keppendur Íslands í Peking: Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir, alpagreinar kvenna – svig, stórsvig og risasvig Sturla Snær Snorrason, alpagreinar karla – svig og stórsvig Kristrún Guðnadóttir, skíðaganga kvenna – sprettganga Snorri Einarsson, skíðaganga karla – 15km F (frjáls aðferð), 30km skiptiganga, 50km C Mst (fjöldastart, hefðbundin aðferð), liðakeppni í sprettgöngu Isak Stianson Pedersen, skíðaganga karla – sprettganga og liðakeppni í sprettgöngu
Vetrarólympíuleikar 2022 í Peking Mest lesið Kristófer Acox kallar sig glæpamann Körfubolti Svona var blaðamannafundur Arnars Fótbolti Rooney að kenna að Liverpool er komið á sigurbrautina á ný? Enski boltinn Arnar Gunnlaugsson las yfir vælandi fýlupúkum hjá Real Madrid Fótbolti Mál Alberts truflar landsliðið ekki Fótbolti Hópurinn fyrir lokaleikina: Hörður og Jóhann snúa aftur Fótbolti Littler kjörinn kynþokkafyllsti íþróttamaður heims Sport Foden í stuði gegn Dortmund Fótbolti Davíð Smári tekur við Njarðvík Íslenski boltinn „Ég myndi ekki óska neinum þess að lenda í þessu“ Fótbolti Fleiri fréttir Óstöðvandi Osimhen, magurt hjá Mourinho og Bilbao brenndir Uppgjörið: KR - Grindavík 68-85 | Gestirnir á toppinn Böl Börsunga í Belgíu Foden í stuði gegn Dortmund „Leyfðum þremur leikmönnum að ganga frá okkur“ Spilaði meira en síðustu tvo mánuði til samans Nik fær Lindu Líf til Kristianstad Valskonur niðurlægðu Íslandsmeistarana Magdeburg skoraði 45 en lærisveinar Guðjóns Vals úr leik Sandra María skoraði í svekkjandi leik Emelía með þrennu gegn FCK Óvænt úrslit í Meistaradeildinni Lovísa með níu í góðum sigri Allar landsliðskonurnar komust á blað Tryggvi með flest fráköst í Evrópusigri „Mér finnst þetta ekki leiðinlegur fótbolti“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Sjaldgæf 30-20-10 þrenna í Síkinu í gær Dældi fyrri afrekum inn á Instagram eftir vonbrigðin Valdi Isak en ekki Gyökeres í fyrsta landsliðshópinn sinn Leiðir Breiðabliks og Damir skilja Mál Alberts truflar landsliðið ekki Stuðningsmenn Bröndby enn á ný í vandræðum Vonar að Jóhann og Hörður gefi jafn mikið af sér og Aron Orri Steinn lengra frá því að ná þessum leikjum en þeim í síðasta glugga Hópurinn fyrir lokaleikina: Hörður og Jóhann snúa aftur Svona var blaðamannafundur Arnars „Hann plataði mig algerlega“ Sömu félög að spila í tveimur íþróttum í sama húsinu á sama tíma Sjá meira