Sigurður hafði betur gegn ÍR í Landsrétti Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. febrúar 2022 16:08 Sigurður Gunnar Þorsteinsson í leik með ÍR. Vísir/Vilhelm Landsréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Sigurður Gunnars Þorsteinssonar gegn Körfuknattleiksdeild ÍR.
Þann 17. nóvember 2020 var Körfuknattleiksdeild ÍR dæmd til að greiða Sigurði tæpar tvær milljónir króna auk dráttarvaxta vegna vangoldinna launa. Eftir stutta dvöl í Frakklandi gekk Sigurður aftur í raðir ÍR haustið 2019 og skrifaði undir tveggja ára samning við félagið. Hann meiddist í fyrsta leik sínum með ÍR, gegn Hetti, og missti af þeim sökum af öllu tímabilinu 2019-20. Vorið 2020 rifti ÍR samningi Sigurðar en félagið ákvað að greiða honum ekki laun þar sem það taldi hann ekki hafa uppfyllt sinn hluta samningsins. Sigurður höfðaði mál á hendur ÍR og krafði félagið um tvær milljónir króna vegna vongoldina launa. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Sigurði í hag og ÍR þurfti að greiða honum tæpar tvær milljónir króna auk dráttarvaxta eins og áður sagði. ÍR-ingar áfrýjuðu úrskurðinum til Landsréttar en hann staðfesti dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í dag. ÍR þarf að greiða Sigurði 1.866.000 krónur auk dráttarvaxta. Þá ber stefnda að greiða stefnanda 800 þúsund krónur í málskostnað. Dóminn má nálgast á heimasíðu Landsréttar, eða með því að smella hér. Sigurður leikur í dag með Tindastóli á Sauðárkróki. Á síðasta tímabili lék hann með Hetti á Egilsstöðum.
Subway-deild karla ÍR Dómsmál Kjaramál Sigurður Gunnar Þorsteinsson gegn ÍR Mest lesið „Rokk og ról“ hjá Frey í villta vestrinu Fótbolti Sjáðu atvikið: Hágrátandi Hakimi frá í nokkrar vikur Fótbolti Óstöðvandi Osimhen, magurt hjá Mourinho og Bilbao brenndir Fótbolti Böl Börsunga í Belgíu Fótbolti „Leyfðum þremur leikmönnum að ganga frá okkur“ Sport Spilaði meira en síðustu tvo mánuði til samans Enski boltinn Uppgjörið: KR - Grindavík 68-85 | Gestirnir á toppinn Körfubolti Nik fær Lindu Líf til Kristianstad Fótbolti Magdeburg skoraði 45 en lærisveinar Guðjóns Vals úr leik Handbolti Valskonur niðurlægðu Íslandsmeistarana Körfubolti Fleiri fréttir Uppgjörið: KR - Grindavík 68-85 | Gestirnir á toppinn Valskonur niðurlægðu Íslandsmeistarana Tryggvi með flest fráköst í Evrópusigri Sjaldgæf 30-20-10 þrenna í Síkinu í gær Sömu félög að spila í tveimur íþróttum í sama húsinu á sama tíma Kristófer Acox kallar sig glæpamann Uppgjörið: Njarðvík - Hamar/Þór 88-61 | Auðsóttur sigur Njarðvíkinga Keflavíkursigur í kaflaskiptum leik Stjarnan með þægilegan sigur á nýliðunum Hverjir eru bestu ungu strákarnir í Bónus-deildinni? Söguleg byrjun OKC á tímabilinu Íslandsmeistararnir mæta bikarmeisturunum Skagamenn senda Kanann heim Tilþrif 5. umferðar: Jukic stal senunni Ólíkar niðurstöður hjá landsliðsmönnunum Er Tóti Túrbó ofmetinn? „Gott að við gátum verið liðið sem kláraði þetta“ Erfitt kvöld fyrir Ármann og Tindastól Tvöföld tvenna Tryggva í tæpu tapi Góður lokaleikhluti tryggði Njarðvík sigurinn Styrmir með þrettán í öruggum sigri Zamora Uppgjörið: Valur - KR | 93-100 | KR hafði betur í slag Reykjavíkurstórveldanna Diljá stórkostleg í lokin í endurkomu í Hveragerði „Einn af bestu leikmönnunum í sögu íslensks körfubolta“ Hlýtur að vera alvöru krísufundur í Valsheimilinu um helgina Besta byrjun Chicago Bulls síðan Jordan var í liðinu Blikar áfram með fullt hús stiga ÍR - Ármann 96-83 | Nýliðarnir enn í leit að fyrsta sigrinum „Bara feginn að við fundum þó leið“ Tindastóll - Stjarnan 96-95 | Ótrúlegur endir á Króknum Sjá meira