Með lánsgítar á óþægilegum klappstól Hjalti Freyr Ragnarsson skrifar 16. febrúar 2022 15:15 Umslög smáskífa Rakelar, Salóme og ZAAR prýða skúlptúrar eftir listakonuna Auði Lóu Guðnadóttur. Kaja Sigvalda Í dag kemur út textamyndband við lagið Something með Rakel Sigurðardóttur, sem unnið er af listakonunni Erlu Daníelsdóttur. Lagið er þriðja smáskífan af komandi útgáfu hennar og verkefna tveggja annarra kvenna, Salóme Katrínar og ZAAR.
While We Wait heitir hún og kemur út 25. febrúar. Á henni verða tvö lög með hverri þeirra fyrir sig ásamt einu sem þær gerðu saman. „Ég samdi Something á mjög óþægilegum klappstól í herberginu mínu snemma vors 2021. Ég samdi það á rafmagnsgítar sem ég hafði fengið að láni frá vini mínum. Ég var ekki með neinn magnara í íbúðinni minni svo ég heyrði tæplega það sem kom út úr gítarnum, en það var allavega nóg til þess að kalla fram laglínu,“ segir Rakel um tilurð lagsins. Lagið segir Rakel vera algjört ástarlag. „Ég samdi það þegar ég var að byrja í nýju sambandi og það lýsir kannski svolítið tilfinningunni þegar maður er ennþá smá að reyna að halda kúlinu og ekki alveg tilbúinn til þess að segja allt það sem maður er að hugsa upphátt. Svo lagið var svona tímabundin útrás fyrir allar þessar viðkvæmu og kjánalegu tilfinningar.“ Henni langaði að lagið yrði samtímis bæði hljóðlátt og kraftmikið til að endurspegla tilfinningarnar á bak við það, sem voru bæði háværar og ekki tilbúnar til að berskjaldast. Góðir vinir Rakelar aðstoðuðu hana við að framkvæma þetta, þau Axel Flóvent, Hafsteinn Þráinsson og Svanhildur Lóa. Tvær smáskífur af samstarfsplötunni hafa þegar komið út, Organize (Organ Version) með ZAAR og The Other Side með Salóme Katrínu.
Tónlist Tengdar fréttir Bestu íslensku lög ársins að mati Óla Dóra Í árslistaþáttum Straums á X-977 verður farið gaumgæfilega yfir tónlistarárið 2021. Fyrir viku taldi Óli Dóri umsjónarmaður útvarpsþáttarins niður bestu erlendu lög ársins 2021. Í þessari viku fer hann svo yfir íslensku lögin. 22. desember 2021 16:01 Mest lesið Björgólfur og Kristín í fimmtugsafmæli Beckham Lífið Mæðgin á stóra sviðinu í Feneyjum með íslenskan arkitektúr Menning Áhorfendur djúpt snortnir á forsýningu Stóru stundarinnar Lífið Tónleikar Lady Gaga æðislegir og öryggisgæslan svakaleg Lífið Glamúr og glæsileiki í fimmtugsafmæli Kristínar Ólafs Lífið „Ég fór úr sjötíu prósent þjáningu niður í tíu prósent“ Lífið Stærsti sinueldur Íslandssögunnar í myndum Lífið Pedro Pascal fékk sér að borða á Kaffi Vest Lífið Verðmiðinn hækkar á höll Antons Lífið „Svo byrjaði ég að kyssa stráka og varð allt í einu algjör uppreisnarseggur“ Lífið Fleiri fréttir Davíð í Kaleo bjó til flöskutrommusett Fimmtán ára og gefur út frumsamda plötu Elti ástina til Íslands „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Eyddi unglingsárunum inni í þvottahúsi Gefa út sína fyrsta plötu síðan 2001 Þrumustuð þegar lag Barnamenningarhátíðar var frumflutt Sækir innblásturinn í rússnesku ræturnar Sjá meira
Bestu íslensku lög ársins að mati Óla Dóra Í árslistaþáttum Straums á X-977 verður farið gaumgæfilega yfir tónlistarárið 2021. Fyrir viku taldi Óli Dóri umsjónarmaður útvarpsþáttarins niður bestu erlendu lög ársins 2021. Í þessari viku fer hann svo yfir íslensku lögin. 22. desember 2021 16:01