67,6 milljarða lakari viðskiptajöfnuður Eiður Þór Árnason skrifar 2. mars 2022 11:34 Að sögn Seðlabankans er helsta ástæðan fyrir lakari niðurstöðu viðskiptajafnaðar á fjórða ársfjórðungi lakari niðurstaða frumþáttatekna. Vísir/Vilhelm 44,2 milljarða króna halli var á viðskiptajöfnuði við útlönd á fjórða ársfjórðungi 2021. Niðurstaðan er 61,2 milljarða lakari en ársfjórðunginn á undan og 67,6 milljarða lakari en á sama tímabili árið 2020.
Þetta kemur fram í bráðabirgðayfirliti Seðlabanka Íslands yfir greiðslujöfnuð við útlönd á fjórða ársfjórðungi 2021 og erlenda stöðu þjóðarbúsins í lok ársfjórðungsins. Í lok ársfjórðungsins var hrein staða við útlönd jákvæð um 1.299 milljarða króna eða 40,2% af vergri landsframleiðslu (VLF) og batnaði um 45 milljarða króna eða 1,4% af VLF á fjórðungnum. Erlendar eignir þjóðarbúsins námu 5.099 milljörðum króna í lok ársfjórðungsins en skuldir 3.801 milljörðum. Halli á viðskiptajöfnuði fyrir árið 2021 í heild nam 90,2 milljörðum króna samanborið við 24,1 milljarða afgang árið á undan. Halli á vöruskiptajöfnuði var 163,7 milljarðar króna en afgangur á þjónustujöfnuði var 94,8 milljarðar. Helsta skýringin lakari frumþáttatekjur Á fjórða ársfjórðungi 2021 var halli á vöruskiptajöfnuði 38,7 milljarðar króna en 20,1 milljarða króna afgangur var af þjónustujöfnuði. Það er 5,9 milljarða lakari niðurstaða en á sama tímabili 2020. Halli á frumþáttatekjum nam 15,5 milljörðum króna og 10,1 milljörðum á rekstrarframlögum. Halli rekstrarframlaga var 1,6 milljarða króna meiri en á sama fjórðungi árið 2020. Að sögn Seðlabankans er helsta ástæðan fyrir lakari niðurstöðu viðskiptajafnaðar á fjórða ársfjórðungi miðað við sama fjórðung 2020 lakari niðurstaða frumþáttatekna um sem nemur 27,6 milljarða króna. Halli á jöfnuði frumþáttatekna mælist nú eftir viðvarandi afgang frá öðrum ársfjórðungi 2015. Að mestu leyti skýrist það af bættri afkomu fyrirtækja í erlendri eigu sem flokkast undir beina fjárfestingu. Einnig voru vöruviðskipti lakari um sem nemur 23,2 milljörðum króna að mestu vegna kröftugri vöruinnflutnings.
Seðlabankinn Mest lesið Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Atvinnulíf Fleiri fréttir „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Sjá meira