Rússar boða tímabundið vopnahlé til að greiða fyrir rýmingu fjögurra borga Hólmfríður Gísladóttir skrifar 7. mars 2022 06:25 Almennir borgarar í Úkraínu freista þess nú að komast burtu af átakasvæðum eftir gengdarlausar árásir Rússa. epa/Oleksandr Ratushniak Interfax fréttaveitan hefur eftir heimildarmönnum innan varnarmálaráðuneytis Rússlands að árásum verði tímabundið hætt og öruggar flóttaleiðir opnaðar fyrir almenna borgara Kænugarðs, Maríupól, Kharkív og Súmí.
Þá greinir RIA Novosti frá því að eftir samtal Vladimir Pútín Rússlandsforseta og Emmanuel Macron Frakklandsforseta verði tímabundnu vopnahlé lýst yfir frá klukkan tíu að Moskvutíma í dag til að greiða fyrir rýmingu áðurnefndra borga. Rússneski herinn muni hafa eftirlit með brottflutningi fólks, meðal annars með drónum, og eru Úkraínumenn varaðir við því að dreifa fölskum áróðri um að flutningarnir gangi ekki eftir vegna meintra brota Rússa gegn fyrirhuguðu vopnahlé. Vísa Rússar þarna til þess að aðilar komust að samkomulagi um vopnahlé og rýmingu Maríupól bæði á laugardag og sunnudag en í bæði skiptin var hætt við eftir skamma stund, vegna þess að Rússar héldu áfram árásum að sögn stjórnvalda í Úkraínu. Fréttir herma að Rússar hyggist stýra því hvert fólk fer þegar það flýr borgirnar, til að mynda verður íbúum Kænugarðs aðeins gert kleift að ferðast til Hvíta Rússlands og þeir sem flýja Kharkív verða að fara til Rússlands.
Innrás Rússa í Úkraínu Úkraína Rússland Hernaður Mest lesið Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Innlent „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Leita enn að geranda í stungumáli Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Innlent Fleiri fréttir Japanir halda í kjörklefana Bandaríkjamenn vilji að stríðinu verði lokið í júní Birtu ekki baulið Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Höfnuðu kröfum Bandaríkjamanna Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Neytandi njósnakláms varð fórnarlamb Tugir látnir eftir sprengjuárás í Islamabad Flúði fílahjörð í kjaftinn á krókódíl Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Hik komið á lýtalækna í kjölfar bótadóms vegna kynleiðréttingar Rússar í vandræðum með netið í Úkraínu Umferðin í klessu vegna mikillar snjókomu í Danmörku Hátt settur leyniþjónustumaður skotinn og særður í Moskvu Fór í flugtak af akbraut og hafnaði úti á grasi Bandaríkjamenn og Rússar taka upp formleg samskipti á ný Hvetur til allsherjarverkfalls ef Trump reynir að stela þingkosningunum Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Segir 55 þúsund hermenn fallna en margra sé saknað Vara við uppgangi Íslamska ríkisins Sjónvarpskona biður mannræningja um sönnun þess að móðir hennar lifi enn Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Vildi ekki hitta miðvinstriþingmenn í heimsókn til Washington Sendi Trump tóninn vegna Taívan Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Segir brýnt að semja um áframhaldandi fækkun kjarnavopna Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Segist sjá eftir hverri mínútu með Epstein Sjá meira