Albert veikur heima þegar Genoa gerði enn eitt jafnteflið Arnar Geir Halldórsson skrifar 13. mars 2022 18:50 Albert ekki með vegna veikinda. vísir/getty Genoa er óumdeilanlega jafntefliskóngarnir í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Í dag gerði liði markalaust jafntefli við Atalanta í Bergamo sem verða reyndar að teljast góð úrslit þar sem Atalanta er í 5.sæti á meðan Genoa er í næstneðsta sæti deildarinnar. Þetta var hins vegar sjöunda jafntefli Genoa í röð og hefur liðið gert alls sextán jafntefli í 29 leikjum á tímabilinu. Albert Guðmundsson lék ekki með liðinu í dag vegna veikinda. Á sama tíma vann Udinese 0-1 sigur á AS Roma. Ítalski boltinn
Leik lokið: Breiðablik - KA 3-1| Mikilvægur sigur Blika en vandræði KA halda áfram Íslenski boltinn
Leik lokið: FH - Þór Ak. 1-1| Úrslit sem gera lítið fyrir bæði lið í fallbaráttunni Íslenski boltinn
Leik lokið: Breiðablik - KA 3-1| Mikilvægur sigur Blika en vandræði KA halda áfram Íslenski boltinn
Leik lokið: FH - Þór Ak. 1-1| Úrslit sem gera lítið fyrir bæði lið í fallbaráttunni Íslenski boltinn