Barcelona með góða forystu eftir endurkomusigur Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 22. mars 2022 21:56 Alexia Putellas skoraði tvö mörk fyrir Börsunga í kvöld. Angel Martinez/Getty Images Evrópumeistarar Barcelona unnu góðan 3-1 útisigur gegn Real Madrid í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta kvenna í kvöld eftir að hafa lent undir. Olga Garcia Carmona kom heimakonum í Real Madrid yfir með marki strax á áttundu mínútu, en Alexia Putellas, besta knattspyrnukona heims, jafnaði metin af vítapunktinum snemma í síðari hálfleik. Það var svo Claudia Pina sem kom í Börsungum 2-1 með marki þegar um tíu mínútur voru til leiksloka og Alexia Putellas bætti þriðja markinu við í uppbótartíma. Niðurstaðan varð því 3-1 sigur Barcelona, en liðið hefur unnið hvorki fleiri né færri en 35 leiki í röð. 34 games. 34 wins. Barcelona Femeni's unbeaten streak is unreal 😤 pic.twitter.com/9mvR8ssrJh— GOAL (@goal) March 22, 2022 Leikurinn í kvöld fór fram á Alfredo Di Stefano vellinum í Madrid en það hefur verið gagnrýnt að Real Madrid skuli, eitt félaga í átta liða úrslitum keppninnar, ekki nýta sinn stærsta leikvang fyrir leikinn. Liðin mætast að nýju á Camp Nou í Barcelona, frammi fyrir 85.000 áhorfendum, á miðvikudaginn í næstu viku. Leikurinn var í beinni og opinni útsendingu DAZN sem hægt er að horfa á hér að neðan. Meistaradeild Evrópu í fótbolta kvenna
Uppgjörið og viðtöl: Breiðablik - KA 3-1| Mikilvægur sigur Blika en vandræði KA halda áfram Íslenski boltinn
Uppgjörið: Víkingur - Fram 5-0 | Elías Már með þrennu í stórsigri Víkings í toppslagnum Íslenski boltinn
Uppgjörið: ÍBV-Stjarnan 2-1| Endurkomusigur Eyjamanna og uppskerubrestur Stjörnunnar Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: FH - Þór Ak. 1-1| Úrslit sem gera lítið fyrir bæði lið í fallbaráttunni Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: Breiðablik - KA 3-1| Mikilvægur sigur Blika en vandræði KA halda áfram Íslenski boltinn
Uppgjörið: Víkingur - Fram 5-0 | Elías Már með þrennu í stórsigri Víkings í toppslagnum Íslenski boltinn
Uppgjörið: ÍBV-Stjarnan 2-1| Endurkomusigur Eyjamanna og uppskerubrestur Stjörnunnar Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: FH - Þór Ak. 1-1| Úrslit sem gera lítið fyrir bæði lið í fallbaráttunni Íslenski boltinn