Hjarta Grindavíkur slær á Bryggjunni Bryggjan Grindavík 4. maí 2022 11:45 Allt er gert frá grunni úr grindvísku hráefni á nýjum matseðli Bryggjunnar. Fiskinum er landað beint fyrir framan veitingastaðinn, „Sjórinn og mannlífið á bryggjunni hefur alltaf haft mikið aðdráttarafl fyrir okkar gesti,“ segja Axel Ómarsson og Hilmar S. Sigurðsson, eigendur Bryggjunnar Grindavík en þeir reka bæði kaffihús og veitingastað niðri við höfnina í Grindavík þar sem fiskinum er landað fyrir framan veitingastaðinn.
Í upphafi voru það heimabakaðar rjómapönnukökur og kaffi á bryggjunni sem ýttu boltanum af stað. Nú streyma ferðamenn til Grindavíkur til að njóta gestrisni heimamanna sem bjóða upp á eitt ferskasta hráefni á landinu í samstarfi við sjávarútvegsfyrirtækið Vísi í Grindavík sem er í næsta húsi á hafnarbakkanum. Hilmar S. Sigurðsson, Axel Ómarsson og Gestur Ólafur Auðunsson, eigendur Bryggjunnar ásamt Dag Kristoferssen rekstrarstjóra. Upphaflega var húsiið byggt 1979 sem netagerðaverkstæði af bræðrunum og netagerðarmönnunum, Kristni og Aðalgeiri Johanssen. Eingöngu var netagerðarstarfsemi í húsinu um árabil. Síðan fóru ferðamenn á birtast á bryggjunni. Ferðamennirnir sóttu í að drekka kaffi með köllunum í netagerðinni og spjalla við sjómenn sem voru gestkomandi. Þá fóru eiginkonur bræðranna að baka pönnukökur og kökur með kaffinu og allir voru glaðir að fá gesti. Bræðurnir opnuðu svo kaffihúsið Bryggjuna á neðri hæð hússins árið 2009, sem varð mjög vinsælt fyrir bæði heimamenn og ferðamenn. Útsýni er yfir hafið og á sólríkum dögum geta gestir borðað úti á sólpalli. „Við keyptum húsið árið 2018 og höfum gert á því miklar endurbætur. Hér eru enn bakaðar pönnukökur daglega,“ segir Hilmar. Kaffihúsið varð fljótt fastur viðkomustaður heimamanna og það kunnu ferðamennirnir sérstaklega að meta. „Þetta er bara Grindavík beint í æð. Hér er verið að segja sögur og uppi á vegg erum við með skilti yfir aflahæstu skipstjórana þangað til kvótinn var settur á. Hér eru haldnir reglulega tónleikar. Bátarnir landa hér fyrir utan, og fólk rennir hingað úr bænum í bíltúr niður á bryggju. Þegar túristar spyrja til vegar í „miðbæinn“ er þeim vísað beinustu leið niður á höfn. Hér slær hjarta bæjarins,“ segir Axel. Hægt er að fylgjast með vinnslunni í netagerðarsalnum gegnum gler. Nýr og fjölbreyttur matseðill Fljótlega opnuðu þeir Axel og Hilmar einnig veitingastað á efri hæðinni sem fékk heitið Netagerðin. Í húsinu hefur verið starfrækt netagerð í tugi ára og er enn starfandi í hluta hússins. Veitingasalurinn tekur 230 manns í sæti og er með útsýni yfir alla höfnina. Matargestir geta einnig fylgst með netagerðarmönnum að störfum í vinnusal netagerðarinnar. Gestir Bryggjunnar gera sér gjarnan ferð til þess að smakka hina víðfrægu humarsúpu staðarins. „Humarsúpan okkar nýtur mikilla vinsælda enda er hún búin til af mikilli ást og umhyggju. Grunnurinn að súpunni er látinn malla í marga klukkutíma! Það hefur verið fjallað um súpuna í erlendum miðlum eftir að bandaríska leikkonan Sigourney Weaver kom hingað til lands og sagði súpuna það besta sem hún hefði fengið í allri Evrópuferðinni,“ segir Hilmar. Súpan verður á sínum stað á matseðlinum og er glútenfrí. Glæsilegur salurinn tekur 230 manns í sæti. „Svo höfum við bætt við nýjum réttum. Allt gert frá grunni úr grindvísku hráefni. Fiskinum er landað hérna beint fyrir framan veitingastaðinn svo það gerist ekki ferskara, saltfiskur, plokkfiskur, fiskur og franskar og bleikja frá Grindavík. Það er líka hægt að fá pítsur og borgara og við bökum einnig allt á staðnum. Marengskakan okkar er líka fræg,“ segir Axel. Fjörugt menningarlíf og lengri opnunartími Nýr opnunartími hefur tekið gildi á Bryggjunni en nú er opið frá klukkan 11 til 21 alla daga vikunnar. Þeir Hilmar og Axel segja spennandi sumar framundan. „Nýi matseðillinn á eftir að vekja mikla lukku, fólk var að bíða eftir meira úrvali og við höfum orðið við því. Við munum halda viðburði í sumar, tónleika og fleira og en það hefur alltaf verið mikil tónlist hér í Grindavík. Sumarið er vel bókað af hópum og í góðu veðri skapast frábær stemming á pallinum hjá okkur. Við erum einnig að bóka veislur eins og fermingar og brúðkaup. Hér er hátt til lofts og húsnæðið allt nýlega tekið í gegn. Það er hægt að halda hér flott partý,“ segir Axel. Nánari upplýsingar er að finna á bryggjan.com
Matur Veitingastaðir Mest lesið „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ Lífið Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið „Götustelpan“ glöð Lífið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Ég fæddist nefnilega á endalausu breytingarskeiði“ Lífið samstarf Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni Tónlist Fær nafn átta árum eftir opinberun Leikjavísir „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Fundu ástina á Domino's Lífið Fleiri fréttir „Ég fæddist nefnilega á endalausu breytingarskeiði“ Stóra stærðfræðikeppnin hafin í grunnskólum landsins Minna plast og meiri tenging við upprunann hjá Nándinni í Firði Hormónabreytingar geta haft meiri áhrif á tannheilsu kvenna en margan grunar „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur „Hörður Grímsson er orðinn lúxusvandamál“ Jólahlaðborð og jólabröns á verði sem kemur á óvart Halldóra Geirharðs og Nikko taka að sér fararstjórn á skíðum í Madonna á Ítalíu Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Hræðilegir dagar í Partylandi Miðbær Nashville kemur til Reykjavíkur og Akureyrar Prótein á að vera í forgangi Af hverju haldast ekki liðir & krullur í hárinu? Fjarstætt að hugsa til þess að þetta myndi enda svona Haribo-kastalar og hrekkjavökugleði í Bónus Ég er full af lífsþrótti og vil eiga fullt af árum í viðbót Ef ég hefði komið einu til tveimur árum seinna hefðum við ekki verið að eiga sama samtal Nýja Garmin Fenix 9 sameinar allt það besta í einu úri Ég vissi sjálf að það var ekki í lagi Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast Ef þú finnur fyrir einkennum, hlustaðu á líkamann Árlega greinast 2.146 einstaklingar: Svona nýtist þinn stuðningur Útilegumaðurinn býður nú meira en ferðavagna og útivistarbúnað Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Svansvottaðar gæðaíbúðir þar sem hugsað er fyrir hverju smáatriði Er bíllinn klár fyrir veturinn? Kíktu á vetrartékklista Bílanausts Nathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Rafha fagnar 90 árum með pönnukökum, afmælistilboðum og fjöri Sjá meira