Jæja þá er partýið búið! Yngvi Ómar Sighvatsson og Guðmundur Hrafn Arngrímsson skrifa 14. maí 2022 07:15 Græðgin getur stundum komið í bakið á fólki, er það ekki? Nú síðustu 10 árin hafa fjármagnseigendur gengið sífellt harðar fram í okri á fátækasta fólki landsins og með því að skattleggja almenning í gegnum húsnæðisstyrki, en þeir renna beint í vasann þeirra og viðhalda sjálfdæmi í verðlagningu og okri. Okri sem á sem lítil sem engin takmörk og ávöxtun á fjármagni sem varla þekkist annarstaðar nema ef vera skyldi áhættusöm verðbréfaviðskipti. Fáránleiki leigumarkaðarins Við hjá samtökum leigjenda höfum síðasta hálfa árið bent ítrekað á fáránleika leigumarkaðarins og dregið fram margar sláandi staðreyndir um skaðleg áhrif hans. Húsaleiga á Íslandi hefur hækkað um 104% á síðustu 10 árum en einungis um 15.3% á meginlandi Evrópu Leiga hér er 80 til 100 þús krónum dýrari en ef miðað væri við fjármagnskostnað og húsaleiga sem hlutfall af kaupverði. Í öllum þeim löndum sem við berum okkur saman við er lægri mánaðarlegur kostnaður að leigja en að kaupa. Á Íslandi bera leigjendur að meðaltali 40% hærri mánaðarlegan húsnæðiskostnað á við þá sem eru að kaupa. Leiguþak eða viðmiðunarverð er mikið notað í Evrópu og samhliða því er sterkur óhagnaðardrifinn leigumarkaður. Hér er hvorugt. Ávöxtun fjármagns lýtur ákveðnum skilyrðum sem vel er lýst í landslögum. Til dæmis stjórnar Seðlabankinn vaxtastigi í landinu. Ef þú hinsvegar ákveður að festa fé þitt í fasteign og leigja hana út þá eru þér enginn mörk sett varðandi það vaxtastig sem þú leggur á leigjandann, þú hefur uppi fullkomið sjálfdæmi og kemst upp með það því leigjandinn kemst ekki undan þér, hann verður að fá húsaskjól og heimili. Græðgi og ásókn leigusala í íbúðir til að leigja út með stjarnfræðilegri álagningu er orðin slík að yfirgnæfandi meirihluta fasteigna sem bætast við markaðinn fara í þeirra hendur eignafólks og lögaðila. Þetta er farið að valda því að venjulegt fjölskyldufólk er ekki eingöngu að borga alltof hátt verð fyrir fasteign sem það vill eignast, heldur verður það æ oftar yfirboðið af fjársterkum aðilum sem sópa til sín fasteignum. Það stendur í húsaleigulögum að leiguverð skuli vera sanngjarnt fyrir báða aðila, en það er óravegur frá því að svo sé. Það er ekkert sem tryggir sanngjarna og eðlilega verðmyndun á leigumarkaði. Leigjendur á Íslandi búa við mikið óöryggi og í þessu hættulega ástandi með húsnæðisskort og síhækkandi leigu þá eru þeim setar ýmsar kvaðir mega t.d ekki fá gesti, sitja húsfundi, hafa ekki aðgang að ákveðnum rýmum í leiguhúsnæðinu, ekki hengja upp myndir og margt fleira. Ófyrirleitin og skaðleg græðgi í skjóli yfirvalda. Með þessari græðgi og ófyrirleitni hafa leigusalar gengið fram af almenningi. Núna hefur hátterni þeirra og skeytingarleysi gagnvart velferð leigjenda verið afhjúpað. Nú þegar almenningur er farin að átta sig á þessu óréttlæti og fjölmiðlar tekið eftir þá má búast við að stjórnmálamenn fari að bregðast við. Það má með sanni segja að ákveðið skapadægur sé runnin upp varðandi þessa hegðun. Leigusalar og þá sérstaklega stóru leigufélögin hafi skotið sig í fótinn með hömlulausu okri á fátæku fólki landsins. Þessir aðilar hafa athafnað sig undir trumbuslætti stjórnvalda í hringleikahúsinu og níðst á leigjendum. Nú er almenningi farið að blöskra, og ekki síst vítaverðu skeytingarleysi þeirra sem kjörnir eru til að stuðla að og verja velferð leigjenda. Við gefum okkur að stjórnmálamenn hafi manngildi í heiðri í sinni pólitík, að þau séu fólk með samkennd sem vill réttlátt samfélag fyrir alla. Við gerumst meira segja svo djarfir að ætla að manngildi þeirra, réttlæti og heiður sé til leigjenda líka og þeirra velferð. Velferð leigjenda er umlukin verðmyndun á leigumarkaði og því gefum við okkur að fulltrúar leigjenda sem framfylgja húsnæðismálum í borgarstjórn og á alþingi vilji tryggja sanngjarna húsaleigu. Eina leiðin til að tryggja sanngjarna húsaleigu í núverandi ástandi er ,með því að setja leiguþak. Viðmiðunarverð sem allir hagnast á Viðmiðunarverð fyrir húsaleigu á að taka mið af fjármagnskostnaði fasteignaeiganda og hagnaði hans í formi eignamyndunar og hækkun á verðmæti. Þetta myndi ekki bara skila hér réttlátari leigumarkaði heldur einnig spara ríki og sveitarfélögum stórar fjárhæðir á ári. Beinn sparnaður yrði með því að útgreiðsla húsnæðisstyrkja myndi snarminnka og óbeinn sparnaður fælist bæði í bættum lífsgæðum leigjenda og með stórauknu neyslufé myndu þeir koma með innspýtingu í hagkerfið. Þeir peningar sem sparast hjá ríkinu gætu staðið undir því að byggja rúmlega 200 íbúðir á hverju ári. Leigjendur á íslenskum húsaleigumarkaði borga rúmlega 100 milljarða á ári í húsaleigu, sem er sama upphæð og kostar að byggja allar íbúðir á landinu á hverju ári líka. Við erum ekki að stinga upp á að leigusalar borgi með húsnæðinu heldur væri þeim gert kleift að sækja um leigubætur ef sýnt væri fram á að kostnaður þeirra væri hærri en viðmiðunarverðið. Þannig gæti sá leigusali sem er með mjög skuldsetta eign geta sótt um stuðning, sem yrði svo aftur háður hagnaði hans í formi eignamyndunar og hækkandi húsnæðisverðs. Við vitum að hagsmunasamtök ríka fólksins og auðmannaklíkunnar sem nýta sér neyð leigjenda koma að sjálfsögðu til með að berjast gegn öllum hugmyndum um viðmiðunarverð. Það munu þau gera með liðsinni þeirra stjórnmálaafla sem sjá leigjendur sem auðlind í fasteignabraski. Skeytingarleysið gagnvart leigjendum nær nefnilega langt inn í heim stjórnmála og þaðan er leyfunum deilt. Úrtölur leigusalana og afhjúpun Helstu rök þeirra sem sjá eingöngu meinbugi á því að tryggja velferð leigjenda með lækkaðri húsaleigu sé að þá gæti fækkað þeim sem vildu leigja út húsnæði. En hvernig skildi þeim hræðsluáróðri farnast ef við lítum til þeirra takmarkana sem nú þegar eru settar á vexti og útlán. Það þykir til dæmis mjög eftirsóknarvert að eiga banka hér á landi en samt er þeim skorður settar í vaxtakjörum, og því ekki setja skorður á vaxtakjör þeirra sem leigja út húsnæði ? Einnig mun koma til orðræða sem segir að leiga færist þá meir undir borðið og á svarta markaðinn. Við segjum á móti að þá þurfi slíkt athæfi að vera refsivert svo um munar og að auki væri hægt að setja fram hvata fyrir leigjendur svo þeir tilkynni slíkt, afslátt af leigu og aukin réttindi á leigutíma í kjölfarið. Girðum okkur í brók og sköpum hér réttlátt samfélag fyrir alla. Það er bara ekki í boði að fjársterkum aðilum sé gert kleift að níðast svona á venjulegu fólki, það er þjóðhagslega óhagkvæmt og veldur þjóðfélaginu stórkostlegum skaða. Höfundar eiga sæti í stjórn samtaka leigjenda á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Guðmundur Hrafn Arngrímsson Leigumarkaður Skoðun: Kosningar 2022 Mest lesið Gellupólitík Hlédís Maren Guðmundsdóttir Skoðun Síbrotaferill ríkislögreglustjóra Einar Steingrímsson Skoðun Velkomin á fjórðu vaktina Árný Ingvarsdóttir Skoðun Vitundarvakning um ófrjósemi: Þekking á frjósemi er ekki lúxus – hún er lífsnauðsyn María Rut Baldursdóttir Skoðun Ísland þarf að tilnefna fulltrúa í European SET Plan Ester Halldórsdóttir Skoðun Heimilisofbeldi er ekki einkamál – hugleiðing fyrrverandi lögreglumanns Sigurður Árni Reynisson Skoðun Martin bakari flýgur heim með látum frá leikvelli auðmanna í Vatnsmýrinni Daði Rafnsson,Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir Skoðun Dauðsföll í Gaza-stríðinu og Mogginn Egill Þórir Einarsson Skoðun Hvers virði er framtíðin? Um olíuleit við Ísland Jóhanna Malen Skúladóttir Skoðun Hrekkjavaka á Landakoti Kristófer Ingi Svavarsson Skoðun Skoðun Skoðun Gellupólitík Hlédís Maren Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Ísland þarf að tilnefna fulltrúa í European SET Plan Ester Halldórsdóttir skrifar Skoðun Vitundarvakning um ófrjósemi: Þekking á frjósemi er ekki lúxus – hún er lífsnauðsyn María Rut Baldursdóttir skrifar Skoðun Síbrotaferill ríkislögreglustjóra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Velkomin á fjórðu vaktina Árný Ingvarsdóttir skrifar Skoðun Hvers virði er framtíðin? Um olíuleit við Ísland Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Vísvitandi verið að skaða atvinnulífið? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Varaflugvallagjaldið og flugöryggi Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun Heimilisofbeldi er ekki einkamál – hugleiðing fyrrverandi lögreglumanns Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Á rauðu ljósi í Reykjavík Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Hefur þú tíma? Ósk Kristinsdóttir skrifar Skoðun Heilnæm fæða – íslenskur landbúnaður er grunnur öryggis okkar Ragnar Rögnvaldsson skrifar Skoðun Arnaldarvísitalan Starri Reynisson skrifar Skoðun Fjölmiðlar í kreppu Stefán Jón Hafstein skrifar Skoðun Dauðsföll í Gaza-stríðinu og Mogginn Egill Þórir Einarsson skrifar Skoðun Eyðum óvissunni Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Opinberi geirinn og stjórnunarráðgjafar: ástarsaga Adeel Akmal skrifar Skoðun Ættbálkahegðun á stafrænu formi Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Kirkjurnar standa en stoðirnar eru sveltar Anton Guðmundsson skrifar Skoðun Martin bakari flýgur heim með látum frá leikvelli auðmanna í Vatnsmýrinni Daði Rafnsson,Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir skrifar Skoðun Stytta þarf veiðitíma svartfugla strax Hólmfríður Arnardóttir,Helga Ögmundardóttir skrifar Skoðun Hver greiðir fyrir breytingarnar? Svanfríður G. Bergvinsdóttir skrifar Skoðun Um Liverpool, Diogo Jota, áföll og sorgina – hugleiðingar sálfræðings Andri Hrafn Sigurðsson skrifar Skoðun Stöndum vörð um Héraðsvötnin! Rakel Hinriksdóttir skrifar Skoðun Við erum búin að missa tökin Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Hjúkrunarheimili í Þorlákshöfn Gestur Þór Kristjánsson,Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir,Grétar Ingi Erlendsson,Erla Sif Markúsdóttir skrifar Skoðun Stöðug uppbygging orkuinnviða Adrian Pike,Bjarni Þórður Bjarnason,Tómas Már Sigurðsson skrifar Skoðun Rýr húsnæðispakki Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hrekkjavaka á Landakoti Kristófer Ingi Svavarsson skrifar Skoðun Óvenjulegt fólk Helgi Brynjarsson skrifar Sjá meira
Vitundarvakning um ófrjósemi: Þekking á frjósemi er ekki lúxus – hún er lífsnauðsyn María Rut Baldursdóttir Skoðun
Heimilisofbeldi er ekki einkamál – hugleiðing fyrrverandi lögreglumanns Sigurður Árni Reynisson Skoðun
Martin bakari flýgur heim með látum frá leikvelli auðmanna í Vatnsmýrinni Daði Rafnsson,Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir Skoðun
Skoðun Vitundarvakning um ófrjósemi: Þekking á frjósemi er ekki lúxus – hún er lífsnauðsyn María Rut Baldursdóttir skrifar
Skoðun Heimilisofbeldi er ekki einkamál – hugleiðing fyrrverandi lögreglumanns Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Martin bakari flýgur heim með látum frá leikvelli auðmanna í Vatnsmýrinni Daði Rafnsson,Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir skrifar
Skoðun Um Liverpool, Diogo Jota, áföll og sorgina – hugleiðingar sálfræðings Andri Hrafn Sigurðsson skrifar
Skoðun Hjúkrunarheimili í Þorlákshöfn Gestur Þór Kristjánsson,Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir,Grétar Ingi Erlendsson,Erla Sif Markúsdóttir skrifar
Skoðun Stöðug uppbygging orkuinnviða Adrian Pike,Bjarni Þórður Bjarnason,Tómas Már Sigurðsson skrifar
Vitundarvakning um ófrjósemi: Þekking á frjósemi er ekki lúxus – hún er lífsnauðsyn María Rut Baldursdóttir Skoðun
Heimilisofbeldi er ekki einkamál – hugleiðing fyrrverandi lögreglumanns Sigurður Árni Reynisson Skoðun
Martin bakari flýgur heim með látum frá leikvelli auðmanna í Vatnsmýrinni Daði Rafnsson,Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir Skoðun