Nýr aðstoðarmaður Ten Hag aðstoðaði Sir Alex Ferguson í þrennunni frægu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. maí 2022 10:31 Alex Ferguson og Steve McClaren unnu saman í tæp þrjú ár á Old Trafford. Nú aðstoðar McClaren nýja stjóra Manchester United. Getty/Peter Wilcock Manchester United staðfesti í dag hverjir munu aðstoða nýja knattspyrnustjóra félagsins en Hollendingurinn Erik ten Hag er nú tekinn við liðinu.
Erik ten Hag var meðal áhorfenda á Selhurst Park í gær þegar Manchester United tapaði á móti Crystal Palace í lokaleik sínum á tímabilinu. We are delighted to announce the appointment of Mitchell van der Gaag and Steve McClaren as Erik ten Hag's assistant coaches. A warm welcome to them both! #MUFC— Manchester United (@ManUtd) May 23, 2022 Nýju aðstoðarmennirnir sátu þar við hlið hans eins þeir eru Mitchell van der Gaag og Steve McClaren. Ten Hag vildi fá þá með sér en hann hefur unnið með þeim áður. Van der Gaag var aðstoðarmaður hans hjá Ajax og þá vann ten Hag sem aðstoðarmaður hjá McClaren hjá Twente. McClaren er líka að snúa aftur á Old Trafford nú tuttugu árum eftir að hann starfaði þar síðast. McClaren var nefnilega aðstoðarmaður Sir Alex Ferguson frá 1999 til 2001 og tók meðal annars þátt í þrennutímabilinu ógleymanlega. Hann kom snemma árs og þá í staðinn fyrir Brian Kidd. United vann enska meistaratitilinn á öllum þremur tímabilunum sem McClaren starfaði sem aðstoðarmaður Ferguson. McClaren tók seinna við enska landsliðinu, hann gerði Twente að hollenskum meisturum og var síðast yfirmaður knattspyrnumála Derby County áður en félagið fór í gjaldþrotameðferðina.
Enski boltinn Mest lesið Uppgjörið: Györ ETO - Víkingur 2-2 | Tvö mörk Daníels komu Víkingi áfram í næstu umferð Fótbolti Spánverjar í úrslitaleikinn eftir sannfærandi sigur á Frökkum Fótbolti Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Willum hrifinn af norska módelinu Sport Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti „Mikilvægasti leikurinn minn og ég er ekki hræddur“ Fótbolti Fleiri fréttir Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Sjá meira