Fór á rúnt með ölvuðum ökumanni og verður af sjötíu milljónum króna Árni Sæberg skrifar 13. júlí 2022 14:12 Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 13. júlí. Vísir/Vilhelm Vátryggingarfélag Íslands var á dögunum sýknað af kröfu manns um greiðslu 142 milljóna króna, að frádregnum 38 milljónum króna sem þegar höfðu verið greiddar og 32 milljónum vegna eingreiðsluverðmætis örorkulífeyris, vegna alvarlegs umferðarslyss sem varð árið 2017. Dómurinn taldi að maðurinn hefði sjálfur borið ábyrgð á líkamstjóni sínu með því að hafa farið á rúnt með ölvuðum ökumanni og þyrfti því að bera tvo þriðju hluta tjóns síns sjálfur.
Maðurinn hlaut alvarlegan heilaskaða í slysinu og í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur segir að hann muni aldrei geta unnið aftur og muni þurfa sólarhringsumönnun út ævina. Maðurinn hafði farið í skemmtirúnt ásamt félaga sínum að næturlagi eftir að þeir höfðu setið að sumbli saman. Í dóminum segir að ekki hafi verið um hefðbundna bifreið að ræða heldur einhvers konar skemmtitæki sem ætlað er fyrir akstur utan vega. Þó eru öryggisbelti í ökutækinu og því ekki um bif- eða fjórhjól að ræða. Slysið varð klukkan 04:33 þegar ökutækinu var ekið á gangstéttarkant og yfir gangstétt á ljósastaur. Það kastaðist síðan á klettavegg áður en það valt og staðnæmdist á hægri hlið. Þegar lögreglu bar að garði var maðurinn fastur undir hægri hlið ökutækisins með andlitið við jörðu. Fætur hans lágu undir ökutækinu og virtist vera mikið undið upp á líkamann. Ekki var hægt að fá fram nein viðbrögð frá manninum,en hægri hönd hans lá út undan ökutækinu að aftanverðu. Athugað var með lífsmörk, en engin fundust. Eftir um tuttugu mínútna endurlífgun fékk maðurinn aftur púls. Þá var skaðinn skeður og maðurinn orðinn fyrir miklum heilaskaða. Hann glímir við alvarlega hreyfihömlun ásamt því að vera andlega skertur. matsmenn mátu hann með eitt hundrað prósent varanlega örorku og miska hans 99 stig þegar einvörðungu væri litið til þessa tiltekna slyss, en 77 stig ef tekin væru með í reikninginn slys sem hann hefði áður orðið fyrir. Bar saman um allt nema skerðingu bóta Ekki var uppi ágreiningur um að maðurinn ætti rétt á skaðabótum né hvernig ætti að reikna þær út. Eini ágreiningurinn milli mannsins og VÍS var að tryggingafélagði vildi skerða bætur mannsins um tvo þriðju vegna eigin sakar hans, með vísan til ákvæðis skaðabótalaga um eigin sök tjónþola. Maðurinn tók við einum þriðja bóta úr hendi félagsins en gerði þó fyrirvara við móttökuna. Félagið neitaði að borga rest og úrskurðarnefnd í vátryggingamálum staðfesti rétt félagsins til skerðingarinnar. Því höfðaði maðurinn mál til heimtu tveimur þriðju bótanna. Mátti vel vita að ökumaðurinn væri ölvaður Í niðurstöðukafla dóms Héraðsdóms Reykjavíkur segir að maðurinn hafi mátt vita að ökumaðurinn hafi verið ölvaður enda höfðu þeir setið að sumbli saman svo gott sem allt kvöldið og deilt leigubifreið heim til ökumannsins. Þá hafi maðurinn verið menntaður í og starfað við ótilgreint fag sem ætti gera honum ljóst hver áhrif áfengisneyslu hefðu á getu fólks til að stjórna ökutækjum. Maðurinn bar fyrir sig að ósanngjarnt væri að beita ákvæði skaðabótalaga um lækkun bóta vegna eigin sakar enda hefði slysið haft óvenju mikil áhrif á hann, enda mun hann aldrei geta unnið aftur og mun þurfa umönnun það sem eftir lifir. Í dóminum segir að óumdeilt sé hversu alvarlegar afleiðingar slysið hafði fyrir manninn en að ekki sé tilefni til að telja ósanngjarnt að skerða bætur hans. Með vísan til málsatvika og dómafordæma Hæstarétts sýknaði Héraðsdómur Reykjavíkur VÍS af öllum kröfum mannsins. Málskostnaður var felldur niður og tveggja milljóna króna gjafsóknarkostnaður mannsins greiðist úr ríkissjóði.
Tryggingar Dómsmál Umferðaröryggi Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Fleiri fréttir Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sjá meira