Línumannshallæri hjá Haukum - Aron Rafn ekki byrjaður að æfa Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 10. ágúst 2022 12:00 Gunnar Dan Hlynsson varð fyrir því óláni að slíta krossband á æfingu með Haukum. vísir/hulda margrét Haukar eru í leit að línumanni fyrir átökin í Olís-deild karla í vetur. Tveir línumenn liðsins eru með slitið krossband.
Þráinn Orri Jónsson missti af seinni hluta síðasta tímabils eftir að hann sleit krossband í hné í leik með íslenska landsliðinu á EM í janúar. Til að fylla hans skarð kölluðu Haukar Gunnar Dan Hlynsson til baka úr láni frá Gróttu. Hann kláraði síðasta tímabil með Haukum en sleit krossband á æfingu í síðustu viku. Þetta staðfesti hann í samtali við handbolta.is. Heimir Óli Heimisson, aðallínumaður Hauka undanfarin ár, hefur ekkert æft með liðinu í sumar og því er liðið nánast línumannslaust þegar nokkrar vikur eru í mót. „Við þurfum að finna einhverja lausn en það er ekkert í hendi. Það er nærtækast að heyra í Heimi þegar svona ástand er,“ sagði Rúnar Sigtryggsson, þjálfari Hauka, í samtali við Vísi í dag. Markvörðurinn Aron Rafn Eðvarðsson hefur ekkert æft með Haukum síðan í apríl vegna höfuðhögg. Hann fékk þá skot í höfuðið á æfingu. Þetta var þriðji heilahristingur Arons á síðustu fimm árum. „Hann er í meðhöndlun. Það hafa verið framfarir en samt ekki nóg. Það er alls óvíst hvað verður. Það þarf að gefa þessu nokkrar vikur í viðbót,“ sagði Rúnar. Stefán Huldar Stefánsson og Magnús Gunnar Karlsson vörðu mark Hauka eftir að Aron Rafn féll úr skaftinu á síðasta tímabili. Rúnar tók við þjálfun Hauka af Aroni Kristjánssyni í sumar. Á síðasta tímabili enduðu Haukar í 2. sæti Olís-deildarinnar og féllu úr leik fyrir ÍBV, 3-1, í undanúrslitum úrslitakeppninnar.
Olís-deild karla Haukar Mest lesið Leik lokið: KA - Vestri 1-1 | Sæst á jafnan hlut fyrir norðan Íslenski boltinn Lofar Heimi rauðvínsflösku úr efstu hillu Íslenski boltinn Sendir sófasérfræðingum tóninn: „Líklega eini þjálfarinn í heiminum“ Íslenski boltinn Brentford - Man City | Heldur Haaland áfram þar sem frá var horfið? Enski boltinn Missir Mbappé af Íslandsförinni? Fótbolti Sjáðu laugardagshasarinn í Bestu deild karla Fótbolti „Hann er topp þrír í deildinni“ Körfubolti Sjáðu dramatíkina á Brúnni og mörkin hjá Manchester United og Arsenal Fótbolti „Á endanum fengum við á okkur mark í blálokin“ Enski boltinn Uppgjör: FH - Þróttur 4-0 | Evrópusætið innan seilingar fyrir FH Fótbolti Fleiri fréttir KA áfram eftir frábæran sigur í Eyjum Ómar Ingi frábær með Magdeburg í naumum sigri Haukar og Fram með mikilvæga sigra Tíu íslensk mörk í góðum sigri toppliðsins „Það var smá stress og drama“ Afturelding áfram með fullt hús stiga Markaflóð á Akureyri Viktor Gísli og félagar í Barcelona heimsmeistarar félagsliða Tíu íslensk mörk þegar Magdeburg tók bronsið Valur vann stigalausu Stjörnuna Sandra með stórleik í sigri gegn Selfossi Stórleikur Hauks dugði ekki til sigurs Elín Klara markahæst hjá toppliðinu Íslendingaliðið í undanúrslit Tilfinningaþrungin stund eftir hörmungar síðustu ára Haukur með flestar stoðsendingar í Þýskalandi Íslendingarnir skutu Ringsted áfram Magdeburg fataðist flugið og Bjarki Már í úrslit Hroðaleg hnémeiðsli Janusar Daða Tryggðu sér sigurinn með því að skora síðustu fjögur mörkin Rut barnshafandi Haukur hafði betur í Íslendingaslagnum Eins marks sigur Valskvenna í Evrópudeildinni ÍBV með þægilegan sex marka sigur á Þór Sex marka tap í fyrsta Evrópuleik Selfyssinga Dramatískt jafntefli á Ásvöllum KA sótti sigur gegn stigalausu liði HK Stjarnan sneri leiknum og lagði FH „Þetta var bara draumi líkast“ „Frábært að sjá Darra spila handbolta aftur“ Sjá meira