House of Dragon slær áhorfsmet hjá HBO Samúel Karl Ólason skrifar 25. ágúst 2022 18:55 Matt Smith í hlutverki Daemon Targaryen. Þættirnir House of the Dragon virðast fara gífurlega vel af stað og hafa þættirnir þegar slegið nokkur áhorfsmet hjá HBO. Fyrsti þáttur HOD braut frumsýningarmet fyrirtækisins bæði í Bandaríkjunum og í Evrópu.
Í Bandaríkjunum horfðu tæplega tíu milljónir á fyrsta þáttinn á HBO og streymisveitunni HBO Max þegar hann var frumsýndur. Í Bretlandi, þar sem Sky er með sýningarréttinn á HBO, horfðu 1,9 milljónir á frumsýninguna og var það einnig met. Þá var þátturinn sýndur á mánudaginn í tuttugu og einu Evrópuríki og segir HBO að þar hafi einnig verið slegið met, án þess þá að gefa upp einhverjar tölur. Talsmaður HBO sagði Variety að fyrsti þátturinn hefði farið langt fram úr væntingum forsvarsmanna fyrirtækisins. Þegar síðasti þáttur Game of Thrones var sýndur í maí 2019 horfðu 18,4 milljónir á frumsýninguna, samkvæmt The Wrap. Þættirnir House of the Dragon eru ekki aðgengilegir áhorfendum á Íslandi og mörgum öðrum löndum heimsins, nema með krókaleiðum. Sjá einnig: HBO Max ekki væntanleg til Íslands fyrr en 2024 House of the Dragon byggir á bókinni Fire and Blood, sem fjallar um sögu Targaryen ættarinnar í Westeros. Þættirnir fjalla sérstaklega um þann hluta bókarinnar sem snýr að nokkurs konar borgarastyrjöld innan ættarinnar um hverjir eiga að stýra ríkinu. Styrjöld þessi gengur undir nafinu Dance of Dragons og verður nóg af drekum í þáttunum. Þættirnir gerast tæplega tvö hundruð árum fyrir atburði Game of Thrones. Targaryen-ættin er á hápunkti valdatíðar sinnar í Westeros þegar konungurinn Viserys fyrsti þarf að ákveða hver eigi að vera formlegur erfingi hans. En elsta barn hans er dóttirin Rhaenyra Targaryen og á hann bróður sem heitir Daemon Targaryen. Viserys eignast einnig tvo unga syni með nýrri drottningu en án þess að fara út í einhverja spennuspilla, þá reynist erfingjamálefnið erfitt. Viserys vill ekki að bróðir hans verði konungur en Rhaenyra er kona og lávarðar Westeros eiga erfitt með að sætta sig við konu við völd. Eigi áhugasamir erfitt með að halda utan um hverjar tilteknar persónur þáttanna eru og hverjar tengingarnar þeirra á milli eru, má benda á gagnvirkt ættarkort á vef HBO. Ísland er skráð sem tökustaður í mörgum þáttum seríunnar og þar á meðal þeim fyrsta. Ekki er þó ljóst hvaða tökur fóru fram hér á landi. Til stendur að gera sögu House of the Dragon skil í þremur til fjórum tíu þátta þáttaröðum. Þær gætu þó orðið fleiri samkvæmt forsvarsmönnum þáttanna, þar sem hægt verður að fara fram og aftur í tímalínu Westeros og segja fleiri sögur sem tengjast Targaryen ættinni. HBO vinnur einnig að þróun fleiri þáttaraða úr söguheimi George RR Martin. Þar á meðal eru framhaldsþættir um Jon Snow og þættirnir 10.000 ships, sem eiga að fjalla um stríðskonuna og drottninguna/prinsessuna Nymera, stofnanda konungsríkisins Dorne. Saga hennar gerist um þúsund árum fyrir sögu Game of Thrones þáttanna og var prinsessan einmitt nefnd í fyrsta þætti House of the Dragon.
Bíó og sjónvarp Game of Thrones Mest lesið Kyngdi stoltinu og fjölmargir buðu fram nýra Lífið Tók tíu klukkustundir að komast í búninginn Lífið Svona er kynlífsþjónusta á Íslandi Lífið Dagur Sig genginn í það heilaga Lífið Stjörnurnar á hrekkjavökunni: Louvre-þjófur og vampírur Lífið Tchéky Karyo látinn Lífið „Get ekki gengið óstudd og framundan er mikil endurhæfing“ Lífið Krakkatían: Dóra landkönnuður, Neyðarlínan og „borgin eilífa“ Lífið Ískyggilega líkur ofurfyrirsætu: „Ég er með píku“ Lífið Telur Sweeney hafa verið blekkta í kjólinn Tíska og hönnun Fleiri fréttir Vaktin: Sjónvarpsmenn verðlauna hver annan á ný Barnastjarna bráðkvödd Komu höndum yfir fæðingarvottorðið og ljóstruðu upp um fæðinguna Fimm góðar um vonda færð, snjóstorma og ærandi innilokunarkennd Vafðist tunga um tönn þegar Bond bar á góma Hótelstjóri Hótels Tindastóls er allur „Fallegasti drengur í heimi“ er látinn „Ég hef ekki trú á öðru en að við lifum þetta af“ Tilnefningar fyrir árið 2024 birtar Þau eru tilnefnd til Sjónvarpsverðlaunanna fyrir árið 2023 Sjónvarpsverðlaunin sækja innblástur í stillimyndina Inbetweeners snúa aftur Vesturport fær lóð í Gufunesi Minnist náins kollega og elskhuga „Hættið að senda mér gervigreindarmyndbönd af pabba“ Bak við tjöld Víkurinnar: Háskalegar aðstæður og hættulegur ferðamaður á hjara veraldar Saman á rauða dreglinum Rússar meina kvikmyndagerðarmanni að koma til Íslands Weerasethakul og Corbijn hlutu heiðursverðlaun RIFF Sjá meira