Naumt Meistaradeildartap Elvars og félaga Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 18. október 2022 18:34 Elvar Már Friðriksson í leik með íslenska landsliðinu. Vísir/Hulda Margrét Elvar Már Friðriksson og félagar hans í litháíska liðinu Rytas Vilnius máttu þola naumt fimm stiga tap er liðið heimsótti Bnei Herzliya til Ísrael í Meistaradeild Evrópu í körfubolta í kvöld, 90-85.
Elvar og félagar byrjuðu leikinn af miklum krafti og náðu fljótt tíu stiga forskoti. Þeir bættu heldur betur í áður en fyrsta leikhluta lauk og skoruðu 31 stig gegn aðeins 14 stigum heimamanna. Liðsmenn Bnei Herzliya vöknuðu þó til lífsins í öðrum leikhluta og minnkuðu muninn niður í fjögur stig áður en flautað var til hálfleiks, en staðan var 40-44 þegar liðin gengu til búningsherbergja. Elvar og félagar héldu forskoti sínu lengi vel í þriðja leikhluta, en heimamenn sigldu fram úr áður en honum lauk og liðið náði fjögurra stiga forskoti fyrir lokaleikhlutann. Heimamenn létu það forskot aldrei af hendi og unnu að lokum nauman fimm stiga sigur, 90-85. Elvar skoraði þrjú stig fyrir gestina í kvöld, ásamt því að taka eitt frákast og gefa sex stoðsendingar. Elvar og félagar hafa því tapað báðum leikjum sínum í H-riðli Meistaradeildarinnar og sitja á botni riðilsins.
Körfubolti Mest lesið Gerrard um yfirlýsingu Salah: „Talsverður áfellisdómur yfir stjóranum“ Enski boltinn Alonso tekur við Chelsea Enski boltinn Færeyingar í skýjunum með HM-sætið: „Eigum bara eftir að verða betri“ Handbolti Dagskráin í dag: Heil umferð í Bestu karla, enski boltinn og ögurstund í Njarðvík Sport Aldrei unnið atvinnumannamót en er efstur fyrir lokahringinn á PGA Golf McGregor snýr aftur í búrið og berst við Holloway í júlí Sport „Sem hafa enn og aftur dregið skoskan fótbolta niður í svaðið“ Fótbolti „Hafa aldrei séð afa sinn í vafasömu ástandi en gera það í kvöld“ Fótbolti Dómarinn verið í lögreglufylgd síðan á fimmtudag Fótbolti Guardiola: „Ég er fyndinn gaur“ Enski boltinn Fleiri fréttir Bjarni Guðmann framlengir í Garðabæ Bakverðirnir skutu Spurs áfram í úrslit vestursins Kallar eftir naglasnyrtingu á Króknum Grindavík - Tindastóll 89-94| Tindastóll heldur lífi í einvíginu Sýna puttann til stuðnings Kane Segir NBA Europe vera frábært tækifæri fyrir körfubolta Bikarinn í húsi og leikar að æsast: „Það eiga að vera læti“ Kane sektaður en ekki settur í leikbann Amandine: Einvíginu er ekki lokið Uppgjör: Haukar - Njarðvík 77-69 | Haukar lifa Sindri upp í úrvalsdeild í fyrsta sinn Tryggvi átti stórleik í sigri gegn toppliðinu Hreinn úrslitaleikur um sæti í Bónus-deildinni Stuðningsmaður Grindavíkur í bann fyrir bjórdósakast Lárus hættur í Þorlákshöfn Kæra komin á borð KKÍ vegna Kane Uppselt á innan við þremur mínútum á þriðja úrslitaleikinn Ármann yngir upp um þrjátíu ár Gagnrýnir Körfuboltakvöld: Samþykkja svona hegðun og afvegaleiða umræðuna Fyrsti samkynhneigði leikmaður NBA deildarinnar er látinn „Eins og að mennirnir sem stjórna Tindastóli séu að missa hausinn“ „Einhver barnaskapur held ég“ Eldræða Arnars: „Hlaupa og senda fingurinn upp í stúku“ Tindastóll - Grindavík 83-86 | Stilla Stólum upp við vegg Látinn aðeins 29 ára „Fánar úti um allt og fólk er að gíra sig upp í þetta“ „Það er komin pressa“ Spilar ekki með landsliðinu vegna forræðisdeilu OKC sópaði Lakers og methálfleikur hjá Mitchell „Það þarf að klára þriðja leikinn“ Sjá meira