Fjölþættir annmarkar á Íslandsbankasölunni Vésteinn Örn Pétursson skrifar 13. nóvember 2022 19:44 Guðmundur Björgvin Helgason ríkisendurskoðandi. Vísir/Vilhelm Ríkisendurskoðun hefur lokið við skýrslu sína um söluna á Íslandsbanka og skilað til Alþingis. Skýrslan verður gerð opinber eftir fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar þingsins um hana á morgun. Í skýrslunni er fjallað um „fjölþætta annmarka“ á undirbúningi og framkvæmd sölunnar.
RÚV greindi fyrst frá því að skýrslan væri komin til þingsins. Fréttastofa hefur skýrsluna undir höndum en hún er 71 blaðsíða að lengd. Bankasýsla ríkisins sá um sölu á 22,5 prósenta hlut ríkisins í Íslandsbanka í mars, en í kjölfarið tilkynnti Ríkisendurskoðun að hún hefði fallist á beiðni Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra um að gera úttekt á ferlinu. Upphaflega stóð til að skýrslan yrði tilbúin í júní á þessu ári en henni var ítrekað frestað. Meðal þess sem kemur fram í skýrslunni er að standa hefði þurft betur að undirbúningi og framkvæmd sölunnar. Í niðurstöðukafla skýrslunnar segir að meginmarkmið hennar og viðmið um framkvæmd hafi verið á reiki. „Hugtakanotkun og upplýsingagjöf í þeim gögnum sem Bankasýslan og fjármála og efnahagsráðuneyti lögðu fyrir Alþingi voru ekki til þess fallin að draga upp skýra mynd af tilhögun söluferlisins. Þrátt fyrir reynslu og þekkingu starfsmanna og stjórnar Bankasýslunnar á sviði umsýslu og sölu á eignarhlutum ríkisins í fjármálafyrirtækjum bjó stofnunin ekki yfir reynslu af tilboðsfyrirkomulagi í aðdraganda sölunnar. Stofnunin var í söluferlinu öllu afar háð utanaðkomandi ráðgjöf og þekkingu,“ segir í skýrslunni. Þá segir að tilhlýðilegar kröfur hafi ekki verið gerðar til umsjónaraðila, söluráðgjafa og söluaðila. Vegna annmarka á framkvæmdinni hafi eftirspurn verið vanmetin við ákvörðun um leiðbeinandi lokaverð í útboðinu. Eins hafi ekki verið gætt eins vel og mögulegt var að reglum um gagnsæi og hlutlægni. Útfærsla tilboðsfyrirkomulagsins hafi ekki getað tryggt fullt jafnræði þeirra fjárfesta sem því var beint að. Upplýsingagjöf ábótavant Í skýrslunni kemur einnig fram það sjónarmið Ríkisendurskoðunar að upplýsa hefði þurft með afdráttarlausum hætti í minnisblaði Bankasýslunnar, greinargerð ráðuneytisins og í kynningum fyrir þingnefndum hvað fólst í settum skilyrðum um hæfa fjárfesta, sem voru þeir sem gátu tekið þátt í útboðinu. „Með því að notast við hugtökin „hæfir fjárfestar“ eða „hæfir fagfjárfestar“ varð hætta á að nefndarmenn sem fjölluðu um málið, og aðrir sem vildu kynna sér áform um söluferlið, stæðu í þeirri trú að þar væri eingöngu um að ræða fjárfesta sem hafa að aðalstarfi að fjárfesta í fjármálagerningum. Sú upplýsingagjöf hefði þó verið þeim takmörkunum háð að þátttaka lítilla einkafjárfesta í söluferlinu kom Bankasýslunni á óvart,“ segir í skýrslunni. Þá telur stofnunin að ráðuneytið og Bankasýslan hefðu þurft að undirbúa betur skipulagða upplýsingagjöf, sér í lagi í ljósi þess að tilboðsfyrirkomulagi hafði aldrei áður verið beitt sem söluaðferð á eignarhlut ríkisins í fjármálafyrirtæki. Salan hagfelld Í niðurstöðukafla skýrslunnar segir að Ríkisendurskoðun dragi þó ekki í efa að fjárhagsleg niðurstaða söluferlisins hafi verið ríkissjóði almennt hagfelld. Þó sé ekki hægt að fullyrða að salan hafi verið ríkissjóði eins hagkvæm og mögulegt var. Lokaorð skýrslunnar eru þessi: „Annmarkar söluferlisins sem Ríkisendurskoðun fjallar um í þessari úttekt eru fjölþættir og lúta bæði að undirbúningi og framkvæmd sölunnar. Ljóst má vera að orðsporðsáhætta við sölu opinberra eigna var vanmetin fyrir söluferlið 22. mars af Bankasýslu ríkisins, fjármála- og efnahagsráðuneyti og þingnefndum sem um málið fjölluðu í aðdraganda sölunnar.“
Salan á Íslandsbanka Alþingi Íslenskir bankar Stjórnsýsla Íslandsbanki Tengdar fréttir Íslandsbankaskýrslunni enn og aftur frestað Afhendingu á skýrslu Ríkisendurskoðunar um sölu ríkisins á hlut í Íslandsbanka hefur verið frestað á ný. Til stóð að afhenda skýrsluna fyrir helgi en ekkert verður úr því. 31. október 2022 12:40 Hagnaður upp á 7,5 milljarða hjá Íslandsbanka Hagnaður af rekstri Íslandsbanka á þriðja ársfjórðungi 2022 nam 7,5 milljörðum króna. Hreinar vaxtatekjur jukust um 28,7 prósent milli ára. Kostnaðarhlutfall bankans lækkaði úr 39,4 prósentum í 36,3 prósent. 27. október 2022 20:58 Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira
Íslandsbankaskýrslunni enn og aftur frestað Afhendingu á skýrslu Ríkisendurskoðunar um sölu ríkisins á hlut í Íslandsbanka hefur verið frestað á ný. Til stóð að afhenda skýrsluna fyrir helgi en ekkert verður úr því. 31. október 2022 12:40
Hagnaður upp á 7,5 milljarða hjá Íslandsbanka Hagnaður af rekstri Íslandsbanka á þriðja ársfjórðungi 2022 nam 7,5 milljörðum króna. Hreinar vaxtatekjur jukust um 28,7 prósent milli ára. Kostnaðarhlutfall bankans lækkaði úr 39,4 prósentum í 36,3 prósent. 27. október 2022 20:58