Biður leikmenn um að einbeita sér að fótbolta en ekki Greenwood Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 3. febrúar 2023 23:31 Mason Greenwood var handtekinn í janúar á síðasta ári grunaður um nauðgunartilraun, líkamsárás og þvingunartilburði. Ash Donelon/Manchester United via Getty Images Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, biður leikmenn liðsins um að einbeita sér að fótbolta frekar en Mason Greenwod eftir að ákæra á hendur leikmanninum var látin niður falla í gær.
Ákæra á hendur Greenwood var felld niður í gær eftir að lykilvitni í málinu dró sig til baka og ný sönnunargögn í málinu komu upp á yfirborðið. Manchester United á þó enn eftir að framkvæma sína eigin rannsókn á málinu og leikmaðurinn mun því hvorki æfa né spila með félaginu fyrr en þeirri rannsókn lýkur. Mason Greenwood var handtekinn í janúar á síðasta ári, grunaður um nauðgunartilraun, líkamsárás og þvingunartilburði. Aðspurður út í mál Greenwood á blaðamannafundi fyrir leik United gegn Crystal Palace á morgun hafði knattspyrnustjórinn Erik ten Hag þó lítið að segja. Hann vísaði ítrekað í yfirlýsingu félagsins og bað leikmenn liðsins um að einbeita sér að fótboltanum. „Við þurfum alltaf að einbeita okkur að leiknum,“ sagði Ten Hag. „Ég hef ekkert að segja. Ég get ekki bætt neinu við. Ég vísa bara á yfirlýsingu félagsins.“ Þá vildi Hollendingurinn ekkert gefa upp þegar hann var spurður að því hvort hann hafi rætt við Greenwood um framtíð hans hjá félaginu. „Eins og ég segi þá get ég ekki tjáð mig um þetta mál á þessari stundu. Ég get ekkert sagt um þetta mál. Ég vísa aftur á yfirlýsingu félagsins og á þessari stundu get ég ekki bætt neinu við,“ sagði Ten Hag að lokum.
Enski boltinn Mál Mason Greenwood Mest lesið „Ísland í hópi með Norður-Kóreu og Íran“ Sport Dönsk landsliðskona eignaðist barn tólf vikum fyrir tímann Handbolti Loksins þorði einhver í Kolbein sem stígur aftur inn í hringinn Sport Kærastan tók eftir því að eitthvað var að Handbolti Viðtökurnar á Anfield munu ekki breyta neinu Fótbolti Segir allt tal um leiðinlegan fótbolta hjá Arsenal heimskulegt Enski boltinn „Búnt á skenkinn, Halli Egils á vegginn“ Sport Skagamenn senda Kanann heim Körfubolti Guardiola segir að dómararnir hafi verið á móti City í áratug Enski boltinn Gæti tekið við Úlfunum ellefu mánuðum eftir að hafa verið rekinn frá þeim Enski boltinn Fleiri fréttir Eigandi Forest býður fram aðstoð eftir stunguárásina Gæti tekið við Úlfunum ellefu mánuðum eftir að hafa verið rekinn frá þeim Sjáðu mörkin úr kærkomnum sigri West Ham og tvennu Haalands Van Dijk frábiður sér letilega gagnrýni Rooneys Segir allt tal um leiðinlegan fótbolta hjá Arsenal heimskulegt Guardiola segir að dómararnir hafi verið á móti City í áratug „Örugglega nokkrir Fantasy-þjálfarar ósáttir“ „Haaland er þetta góður“ Annað tap spútnikliðsins kom í Manchester Loksins West Ham-sigur í London Úlfarnir ráku Pereira Engin klipping á næstunni: Miður sín en með augun á 8. desember Vara við því að „töfradrykkur“ Haaland geti valdið matareitrun Liverpool loks á sigurbraut á ný Pedro afgreiddi Tottenham Arsenal með sjö stiga forystu á toppnum Andri Lucas í beinni í Doc Zone: „Við setjum hann í skeytin“ Amad bjargaði stigi fyrir United Andri Lucas var kóngurinn á King Power í dag Liverpool féll síðast þegar liðið tapaði fimm í röð „Ég er ekki Schmeichel í dulargervi“ Arne Slot: „Þetta er síðasta spurningin sem ég átti von á“ Segir sönginn um Jota á tuttugustu mínútu hafa áhrif á leik Liverpool Haaland fór sem Jókerinn að versla bleyjur Fullkomin þrenna kom Lampard úr sjöunda himni Jóladagskráin klár: Hefðin brotin og aðeins einn leikur annan í jólum Sjáðu besta liðið í föstum leikatriðum leika listir sínar Barcelona skuldar mest en Tottenham er númer tvö Mikilvægt fyrir United að hamra járnið meðan það er heitt Félagið í greiðslustöðvun en borgaði öll laun degi fyrr Sjá meira