Stærsti bankinn til að fara á hausinn síðan árið 2008 Bjarki Sigurðsson skrifar 10. mars 2023 20:45 Viðskiptavinir SVB sem reyndu að taka út fé í morgun eftir að yfirvöld tóku yfir bankann. Getty/Justin Sullivan Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa tekið yfir allar eigur Silicon Valley-bankans (SVB) en bankinn er sá sextándi stærsti í Bandaríkjunum. Viðskiptavinir bankans geyma um það bil 175 milljarða Bandaríkjadala þar, 24 þúsund milljarða íslenskra króna.
Síðustu daga hefur bankinn verið að reyna að safna fé til að minnka tap á sölu sinni á eignum sem höfðu orðið fyrir áhrifum vaxtahækkana vestanhafs. Vandamál bankans ollu því að fjöldi viðskiptavina reyndi að koma öllu sínu fé úr bankanum sem og að hluthafar reyndu að selja öll sín hlutabréf. Samkvæmt BBC munu yfirvöld hafa tekið yfir eignirnar til að tryggja það að viðskiptavinir sem hafa tryggt fjárhæðir sínar hjá bankanum muni fá fé sitt. Síðan verða eignir bankans seldar og þannig verður fjármunum safnað til að greiða þeim sem ekki höfðu tryggt peninga sína. Virði hlutabréfa í bankanum hrundi um sextíu prósent í gær en virði fleiri banka hrundi einnig. Er það tengt við hrun SVB. SVB var stofnaður árið 1983 en starfsmenn bankans eru 8.500 talsins. BBC greinir frá því að viðskiptavinir bankans geymi um það bil 24 þúsund milljarða króna þar en til samanburðar var verg landsframleiðsla Íslands árið 2022 tæplega fjögur þúsund milljarðar króna.
Bandaríkin Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira