Sveinbjörn nýr framkvæmdastjóri hjá Fossum Atli Ísleifsson skrifar 14. mars 2023 14:18 Sveinbjörn Sveinbjörnsson. Aðsend Sveinbjörn Sveinbjörnsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri eignastýringar Fossa fjárfestingarbanka.
Í tilkynningu segir að Sveinbjörn muni leiða reynslumikið teymi Fossa í áframhaldandi uppbyggingu eignastýringar og fjárfestingaráðgjafar til viðskiptavina bankans. „Sveinbjörn kemur til Fossa frá Íslandsbanka þar sem hann hefur starfað síðastliðin 20 ár og er því með mjög víðtæka reynslu af fjármálamarkaði og þjónustu við viðskiptavini. Síðastliðin 14 ár hefur hann unnið hjá eignastýringu Íslandsbanka, fyrst sem viðskiptastjóri í Einkabankaþjónustu og sem forstöðumaður frá 2013. Hann tók svo við sem forstöðumaður eignastýringar Íslandsbanka 2018. Ráðning Sveinbjörns er liður í yfirlýstri stefnu Fossa fjárfestingarbanka að leggja áherslu á eignastýringu í vaxtaráformum bankans á komandi árum. Sveinbjörn er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og með próf í verðbréfaviðskiptum. Hann hefur störf hjá Fossum í sumar. Anna Þorbjörg Jónsdóttir sem stýrt hefur uppbyggingu eignastýringar Fossa til þessa mun söðla um og taka við stöðu framkvæmdastjóra nýs lánasviðs Fossa. Hún mun að auki áfram leiða þróun á alþjóðlegu vöruframboði bankans með áherslu á erlenda sjóði,“ segir í tilkynningunni. Anna Þorbjörg er hagfræðingur og fjármálastærðfræðingur með meistarapróf frá UCLA og USC. Hún býr yfir víðtækri alþjóðlegri reynslu á fjármálamarkaði. Hún var einn stofnenda World Financial Desk LLC, hátæknifjármálafyrirtækis með aðsetur í New York. Anna Þorbjörg hefur starfað hjá Fossum fjárfestingarbanka síðan 2016 og byggt upp erlent vöruframboð og eignastýringarsvið. Hún hefur starfað í framkvæmdastjórn bankans síðastliðin þrjú ár.
Vistaskipti Fjármálamarkaðir Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira