Deildar meiningar um mögulega Nató-aðild Úkraínumanna Hólmfríður Gísladóttir skrifar 21. apríl 2023 09:09 Stoltenberg vill Úkraínu í faðm Nató en Rússar alls ekki. Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, hefur ítrekað að Úkraína muni ganga í Nató. Þegar yfirstandandi átök taki enda verði að tryggja Úkraínumönnum fælingarmátt til að forða nýjum árásum.
Ummælin lét Stoltenberg falla fyrir fund fulltrúa bandamanna á Ramstein-flugvellinum í Þýskalandi. Fyrr í vikunni heimsótti framkvæmdastjórinn Vólódímír Selenskí Úkraínuforseta í Kænugarði og bauð honum á næsta fund Nató í Vilníus. Stoltenberg sagði í febrúar síðastliðnum að aðildarríki Nató væru sammála um að Úkraína yrði aðili að bandalaginu en um langtíma markmið væri að ræða. Í bili þyrfti að tryggja að Úkraína færi með sigur í stríðinu sem nú geisaði, sem sjálfstæð og sjálfráða þjóð. Dmitry Peskov, talsmaður stjórnvalda í Moskvu, sagði hins vegar í gær að eitt helsta markmiðið með hinum „sérstöku hernaðaraðgerðum“ Rússa í Úkraínu væri að tryggja að Úkraína yrði ekki meðlimur Nató. Aðild Úkraínu yrði alvarleg ógn við öryggi Rússlands. Finnar hafa þegar gengið í Nató í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu og Svíar sótt um en mætt andstöðu stjórnvalda í Tyrklandi. Danir og Hollendingar greindu frá því í gær að þeir myndu sjá Úkraínumönnum fyrir fjórtán Leopard-skriðdrekum til viðbótar, vonandi í ársbyrjun 2024.
Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Úkraína Hernaður NATO Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Sjá meira