Við getum verið stolt Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar 8. maí 2023 13:00 Það er fátt sem við í sjávarútvegi fögnum meira en að fólk hafi áhuga á greininni. Við höfum haft áhyggjur af því að almenningur, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu, hafi minni snertiflöt við greinina en á árum áður. Þær áhyggjur okkar eru staðfestar í nýlegri könnun þar sem meirihluti fólks viðurkennir að hafa litla þekkingu og enn minni snertingu við þessa grundvallar atvinnugrein. Við erum nefnilega afar stolt af henni og langar til að umræðan um hana endurspegli betur veruleikann. Hann er á að greinin er sjálfbær, skapar mikil verðmæti og er grundvöllur nýsköpunar sem nær langt út fyrir hefðbundinn sjávarútveg. Gunnlaug Helga Ásgeirsdóttir skrifar grein sem heitir Ég á kvótann. Það er líklega vísun í 1. grein laga um fiskveiðistjórnun. Þar segir að nytjastofnar á Íslandsmiðum séu sameign íslensku þjóðarinnar og henni beri að tryggja hagkvæma nýtingu þeirra, trausta atvinnu og byggð í landinu. Gunnlaug vitnar einnig í Hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna um að strandríki skuli tryggja viðeigandi verndunar- og stjórnunarráðstafanir á grundvelli vísindalegra niðurstaðna svo stofnum sé ekki stofnað í hættu með ofnýtingu. Það er svo merkilegt að hér er komið að lykilatriði kvótakerfisins. Það er nákvæmlega þetta sem kvótakerfinu er ætla að gera og það hefur tekist. Það er ágætt að fara aftur til ársins 1981. Fyrir kvótakerfið. Þá veiddu Íslendingar rúmlega 460 þúsund tonn af þorski. Ætla mætti að með öllum þessum afla hafi sjávarútvegurinn gengið vel en svo var ekki. Útgerðin var í raun gjaldþrota og tók bankana með sér. Þeir, og hinir ýmsu sjóðir, dældu peningum í greinina en allt var þetta rekið með duglegu tapi. Ástæðan var fyrst og fremst offjárfesting og lágt aflaverð sem var fylgifiskur þess að veiðar voru óskipulagðar og allt kapp lagt á að veiða sem mest á sem skemmstum tíma. Við þessar aðstæður verður kvótakerfið til. Því er ætlað að tryggja hagkvæmni í greininni á þann hátt að hún skili sem mestu til þjóðarinnar án þess að ganga á nytjastofna. Það er einmitt það sem kerfið hefur gert. Í þessari atvinnugrein, eins og öllum öðrum, er það svo að vel rekin fyrirtæki standa sig vel. Þau stækka og nýta sér hagkvæmni þess. Þau geta þó aðeins stækkað upp að vissu marki því að ólíkt flestum öðrum greinum er sérstaklega komið í veg fyrir að fyrirtæki í sjávarútvegi geti átt meira en 12% af aflahutdeild einstaka tegunda. Þessu er ekki til að dreifa í öðrum greinum, hvort sem þær eru rekstur banka, matvöruverslana, tryggingafélaga eða olíufélaga. Það sem gerir íslenskan sjávarútveg sérstakan er að hann nýtur ekki styrkja, eins og víðast hvar í heiminum. Þvert á móti greiðir hann gjöld til samfélagsins. Ekki aðeins veiðigjöld heldur til dæmis líka kolefnisgjald upp á tvo milljarða á ári sem sjávarútvegur annars staðar í Evrópu er undanþeginn. Íslendingar hafa líka rekið sín fyrirtæki á annan hátt en flestar þjóðir sem við berum okkur saman við. Aðrar þjóðir hafa flestar farið þá leið að veiða sinn afla en flytja hann svo að stærstum hluta óunninn á láglaunasvæði til vinnslu. Þessu er þveröfugt farið hér á landi. Meirihluti afla er fullunninn hér í hátæknifiskvinnsluhúsum sem hafa verið byggð upp með nýsköpun íslenskra fyrirtækja á þann hátt að nánast hvert einasta bein í fisknum er nýtt. Mikil áhersla hefur verið lögð á gæði afurða og markaðsstarf sem hefur skilað hæsta verði fyrir íslenskan fisk. Vissulega er ekki líklegt að einhver byrji í útgerð „með tvær hendur tómar“ eins og Gunnlaug segir. Það hefur aldrei verið raunin og verður örugglega aldrei. Ekki frekar en að nokkur stofni tryggingafyrirtæki eða matvöruverslun með tvær hendur tómar. Útgerðir og skip ganga hins vegar kaupum og sölum. Við fórum áðan til 1981. Lítum á 2022. Þorskveiðar voru innan við helmingur þess sem þær voru 1981. Ráðgjöf vísinda er fylgt til að tryggja góða afkomu nytjastofna. Eigi að síður skiluðu þær miklum tekjum. Ekki aðeins til fyrirtækjanna sem stunduðu veiðar heldur einnig til allra þeirra þúsunda sem vinna við þær, eigenda þeirra sem líka skipta þúsundum og samfélagsins. Álögð veiðigjöld árið 2022 voru tæpir átta milljarðar króna. Greidd af rúmlega 900 fyrirtækjum. Við það má bæta fjármagnstekjuskatti af hagnaði, tryggingagjaldi og, ef fólk er í stuði til að reikna, skattgreiðslum þeirra þúsunda sem vinna við greinina. Sá skattur er greiddur af raunverulegri verðmætasköpun, sem síðan stendur undir t.d. launum opinberra starfsmanna, velferðarkerfinu, menntakerfinu og heilbrigðiskerfinu. Og svona í lokin: Það er ekki rétt að ekki hafi verið greidd nein veiðigjöld af nýafstaðinni loðnuvertíð „sökum brogaðs kerfis.“ Þau voru 1800 milljónir króna, sem verður aðeins brot af heildarveiðigjöldum greinarinnar árið 2023. Ef einhver veltir því fyrir sér hvað fæst fyrir 1800 milljónir þá er auðvelt að fletta í nýjasta fjárlagafrumvarpinu (milljónir í sviga). Við höfum einmitt gert það: Píeta-samtökin (26), Aflið, samtök gegn kynferðis og heimilisofbeldi (19), Grófin geðverndarfélag (16), Samtökin 78 (15), Neyðarsjóður Sameinuðu þjóðanna (80), UN Women (170), Flóttamannaaðstoð í Palestínu (35), Fræðslumiðstöð Vestfjarða (29), Myndlistarskólinn í Reykjavík (10), Fjölsmiðjan á Akureyri (5), Afrekssjóður ÍSÍ (392), Rannsóknarmiðstöð HÍ í jarðskjálftafræðum (12), Hringborð Norðurslóða (15), Icelandic startups – frumkvöðlar og sprotafyrirtæki (18), Samtök um sögutengda ferðaþjónustu (2), Skógræktarfélag Íslands – Landgræðsluskógar (54), Sinfóníuhljómsveit Suðurlands (10), Íþróttasamband fatlaðra (40), Skáksamband Íslands (38), Reykjavíkurakademían (25), Matvælaáætlun SÞ – Afganistan, Sýrland og Jemen (100), Barnahjálp SÞ (130), Íslenski dansflokkurinn (215), Fjölmiðlanefnd (95), Neytendastofa (131), Náttúrurannsóknarstöðin við Mývatn (49), Gljúfrasteinn (64) og Fjölsmiðjan Suðurnesjum (5). Okkur finnst þetta eitthvað til að vera stolt af. Höfundur er framkvæmdastjóri SFS. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heiðrún Lind Marteinsdóttir Sjávarútvegur Mest lesið Hverjir fá sætin við borðið? Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Já til að SJÁ Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Helförin var bara fugladrit Helgi Gunnlaugsson Skoðun Fórnarlambsnaglinn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Þegar jafnrétti verður blóraböggull Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Stóra Stjórnarskrármálið Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Halldór 20.06.2026 Halldór „Hvernig veit ég hvort ég hafi gert eitthvað við konu án samþykkis?“ Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Sumarsólstöður: Tími birtu, þakklætis og helgisiða Þuríður Stefánsdóttir Skoðun Af hverju ekki að segja Nei … af hverju ætti að segja kannski? Gunnar Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun Stóra Stjórnarskrármálið Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hverjir fá sætin við borðið? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Já til að SJÁ Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Fórnarlambsnaglinn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður blóraböggull Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Sumarsólstöður: Tími birtu, þakklætis og helgisiða Þuríður Stefánsdóttir skrifar Skoðun Skýr mörk fyrir vindorku, sterkari vernd fyrir náttúruna Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Hver hugsar þegar þú notar gervigreind — þú eða vélin? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mannréttindastofnun og réttindagæsla fatlaðs fólks Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Af hverju ekki að segja Nei … af hverju ætti að segja kannski? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Árásargjarnir lobbíistar vindorkuiðnaðarins Anna Soffia Kristjánsdóttir skrifar Skoðun 19. júní í skugga bakslags: Jafnrétti er ekki sjálfgefið Martha Lilja Olsen skrifar Skoðun Helförin var bara fugladrit Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Síðustu móhíkanarnir Viðar Halldórsson skrifar Skoðun „Hvernig veit ég hvort ég hafi gert eitthvað við konu án samþykkis?“ Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun EES fyrir fyrirtækin, ESB fyrir fólkið? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hvern vantar enn við borðið? Jana Birta Björnsdóttir,Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Áfram gakk Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Hvað þarf að vera til staðar ef dánaraðstoð verður heimiluð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hver borgar þegar samningurinn er svikinn? Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun ESB aðild er óskynsamleg frá efnahagslegu sjónarmiði Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Er kominn tími á nýtt norrænt leiðtogahlutverk? Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Þegar fyrirmyndirnar horfa í skjáinn Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hver framleiðir matinn okkar eftir 20 ár? Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Er dr. Henry Alexander bara til punts? Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Gervigreind er að breyta því hvað það þýðir að vera góður stjórnandi Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Af hverju borgum við evrópsk metverð fyrir grænmeti sem endist í tvo daga? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Mikilvægur áfangi fyrir Norðurland og landið allt Heimir Örn Árnason skrifar Skoðun Stjórnsýsluframkvæmd við vörslusviptingu búfjár, meðalhóf eða flýtilausn? Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Frelsi ungra Íslendinga til framtíðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun „Hvernig veit ég hvort ég hafi gert eitthvað við konu án samþykkis?“ Guðný S. Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Gervigreind er að breyta því hvað það þýðir að vera góður stjórnandi Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Af hverju borgum við evrópsk metverð fyrir grænmeti sem endist í tvo daga? Valerio Gargiulo skrifar
Skoðun Stjórnsýsluframkvæmd við vörslusviptingu búfjár, meðalhóf eða flýtilausn? Sævar Þór Jónsson skrifar